Sautján tekur falsaða merkjavöru úr sölu Kjartan Atli Kjartansson skrifar 28. ágúst 2014 16:37 Sautján hefur tekið eftirlíkingarnar úr sölu.
Sautján hefur tekið eftirlíkingar af beltum merktum ítalska framleiðandanum Moschino úr verslunum sínum. Þetta staðfesti Svava Jóhansen, eigandi NTC sem á og rekur Gallerí Sautján. Á Instagram-síðu verslunarinnar má sjá eftirfarandi auglýsingu: „Loksins eru Moschino beltin mætt aftur til okkar. Takmarkað magn þannig fyrstur kemur, fyrstur fær.“ Í athugasemdum við myndina kemur þó fram að beltin séu „ekki ekta“. Beltin kosta 4995.- krónur í verslunum Sautján.Moschino er ítalskt merki sem var stofnað árið 1983. Beltin frá fyrirtækinu eru mjög dýr. Á vefsíðu fyrirtækisins kemur fram að beltin kosta allt frá 35 þúsund krónum og upp í 53 þúsund krónur.„Ekki okkar stíll“ Svava segir að salan á beltinu hafi farið fram án hennar vitundar. „Rekstrarstjórinn vissi heldur ekki af þessu. Við erum með marga í innkaupum hjá okkur og þetta hefur farið framhjá okkur. Það er ekki okkar stíll að selja eftirlíkingar. Sautján er að mestu byggð upp á merkjavöru og svo okkar hönnun. Ég hef sjálf þurft að standa í ströngu til að verja okkar hönnun, sem hefur verið „kóperuð“ og við viljum ekki selja svona óekta vöru,“ segir hún. „Við viljum vernda höfundarétt á hönnun og við viljum ekki hafa svona vörur til sölu í okkar verslunum,“ segir hún að lokum og bendir á þetta hafi verið mistök sem hafi verið leiðrétt.Getur varðað við lög Að flytja inn og selja vöru sem brýtur í bága við höfundarétt varðar við lög. Í 132. grein Tollalaga segir:„Ef grunur leikur á að innflutningur eigi sér stað á vöru sem brýtur gegn hugverkaréttindum er tollstjóra heimilt, að beiðni rétthafa, að fresta tollafgreiðslu vörunnar á meðan rétthafi leitar bráðabirgðaaðgerða hjá þar til bærum yfirvöldum og í framhaldi af þeim hefur málarekstur fyrir dómstólum. Eftirfarandi skilyrði eru fyrir heimild tollstjóra:1. að rétthafi leggi fram skriflega beiðni til tollstjóra um að tollafgreiðslu verði frestað og skuldbindi sig til að greiða þann kostnað sem leiðir af aðgerðum tollyfirvalda.2. að rétthafi leggi fram fullnægjandi gögn þess efnis að hugverkaréttindi njóti verndar hér á landi, að hann sé handhafi þess réttar og að innflutningur vörunnar muni brjóta á rétti hans; hann skal jafnframt leggja fram nógu nákvæma lýsingu á vörunni til að tollyfirvöld geti borið kennsl á hana3. að rétthafi leggi fram tryggingu í formi fjárgreiðslu, eða með öðrum þeim hætti er tollstjóri telur fullnægjandi, er nægi til að bæta rétthafa, eiganda eða innflytjanda vörunnar það tjón eða þann kostnað sem óréttmæt frestun tollafgreiðslu kann að hafa í för með sér."
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira