Ráðherra hyggst ekki endurskoða veiðibann á lúðu Atli Ísleifsson skrifar 28. ágúst 2014 11:58 Beinar veiðar á lúðu voru bannaðar með reglugerð frá og með 1. janúar 2012. Vísir/GVA
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra hyggst ekki endurskoða veiðibann á lúðu og hvetur hlutaðeigandi til að taka virkan þátt í verndun lúðunnar. Í greinargerð Hafrannsóknastofnunar um áhrif veiðibanns á lúðu kemur fram að ljóst sé að áfram verði að taka af festu á alvarlegu ástandi lúðustofnsins við Ísland, að því er segir í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Beinar veiðar á lúðu voru bannaðar með reglugerð frá og með 1. janúar 2012. „Í lokakafla greinargerðarinnar segir m.a. að uppbygging lúðustofnsins sé langtímaverkefni og ólíklegt sé að umtalsverður bati náist fyrr en eftir 5-10 ár. Vegna hægs vaxtar lúðunnar og þess hversu seint hún verður kynþroska komi árangur friðunar ekki í ljós fyrr en að mörgum árum liðnum. Hafrannsóknastofnun leggur til að áfram verði unnið að aðgerðum til verndar lúðustofninum og reglugerð um bann við veiðum á lúðu verði í gildi þar til merki um verulegan bata í lúðustofninum við Ísland komi fram,“ segir í tilkynningunni. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskaði í október 2013 eftir áliti Hafrannsóknastofnunar um áhrif veiðibanns á lúðu. „Í greinagerð stofnunarinnar er fjallað um útbreiðslu og líffræði lúðunnar, veiðar á henni, ástand stofnsins, vernd og viðreisn lúðu í Norður Atlantshafi, rannsóknir á afdrifum lúðu sem er sleppt o.fl. Þá er fjallað um merkingar Hafrannsóknastofnunar á lúðu sem ráðist hefur verið í til að auka þekkingu á stofninum og áhrif veiðibannsins.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira