Útlendingar koma til að kynnast Víðgelmi 5. ágúst 2014 10:00 Ýmsar gersemar ber að líta fyrir þá sem fara leiðina á enda í Víðgelmi.mynd/Halldór Heiðar Bjarnason
Svo virðist sem fyrst og fremst útlendingar kynni sér einn víðfeðmasta hraunhelli heims þótt stutt sé fyrir Íslendinga að vitja hans í Borgarfirðinum. Þetta er hellirinn Víðgelmir í Hallmundarhrauni skammt frá Fljótstungu í Hvítársíðu. Bjarni H. Johansen, sem er nú syni sínum Halldóri innan handar með ferðaþjónustu í Fljótstungu, segir að líklegast komi um fjögur til fimm þúsund manns í hellinn á ári. Fólk getur farið á eigin vegum um 150 metra inn en þar er búið að koma upp hliði til að vernda þá klaka og dropasteina sem prýða hann þar innar. Bjarni segir að áður en hliðið hafi verið sett upp hafi hellisgestir brotið úr honum kristalla til að hafa með sér heim. Þeir sem vilja sjá mikilfenglegasta hluta hellisins verða að fara í skipulagða ferð með leiðsögumanni og segir Bjarni að erlendir ferðamenn sæki svo mikið í þær að leiðsögumaður anni oft ekki eftirspurn. Íslendingarnir láti hins vegar flestir litla innlitið duga. Segja má að gestrisni Víðgelmis þrjóti í kuldaskeiðum en hann lokaðist af ís frostaveturinn mikla árið 1918 og dvaldi í þeim klakaböndum uns hann opnaðist aftur 1930. Aftur lokaðist hann árið 1972 en var opnaður aftur árið 1991 þegar hann var orðinn nokkuð þíður. Víðgelmir er rúmur einn og hálfur kílómetri að lengd og 148 þúsund rúmmetrar eða á við 250 einbýlishús.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira