Skáklandsliðið tapaði fyrir Svíum Atli Ísleifsson skrifar 5. ágúst 2014 23:03 Báðar íslensku sveitirnar hafa fjögur stig á mótinu. Vísir/Gunnar Björnsson
Íslenska liðið í opnum flokki tapaði fyrir liði Svíþjóðar með minnsta mun í fimmtu umferð Ólympíuskákmótsins í Tromsö fyrr í dag. Hannes Hlífar, Hjörvar Steinn og Helgi Ólafsson gerðu jafntefli en Guðmundur Kjartansson tapaði. Kvennaliðið tapaði fyrir liði Venesúela með hálfum vinningi gegn þremur og hálfum þar sem Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir gerði jafntefli að aðrar töpuðu. Í fréttatilkynningu frá Skáksambandinu segir að Aserar, Búlgarar og Serbar séu efstir með fullt hús stiga í opnum flokki. Aserar unnu Frakka, Búlgarar sigruðu Rúmena og Serbar lögðu Tékka að velli. Þrettán þjóðir hafa sjö stig, þar á meðal Rússar og Kínverjar sem gerðu 2-2 jafntefli í dag sem og Norðmenn sem unnu Pólverja. Kínverjar, Indónesar, Ungverjar, Rússar og Íranar eru efstir í kvennaflokki einnig með fullt hús stiga. Báðar íslensku sveitirnar hafa fjögur stig. Íslenska liðið í opnum flokki mætir alþjóðlegri sveit blindra og sjónskertra í fimmtu umferð Ólympíuskákmótsins sem fram fer á morgun, miðvikudag. „Það er ánægjulegt að á Ólympíuskákmótinu skulu sérsveitir blindra/sjónskertra, heyrnarskertra og hreyfihamlaðra taka þátt. Það segir margt um slagorð skákarinnar - við erum ein fjölskylda. Allir geta geta tekið þátt! Stelpurnar mæta sveit Bangladess,“ segir í fréttatilkynningunni.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira