Skoða virkjanakosti fyrir landeigendur Sveinn Arnarsson skrifar 5. ágúst 2014 07:00 Flestir þeirra virkjanakosta sem íbúar Dalvíkurbyggðar greiða hagkvæmniathugun á eru í landi einkaaðila. Fréttablaðið/Pjetur
Meirihluti Byggðaráðs Dalvíkurbyggðar samþykkti á síðasta fundi ráðsins tilboð fyrirtækisins Mannvits um að kanna hagkvæmni smávirkjana í bæjarfélaginu. Fulltrúi minnihlutans sat hjá við afgreiðslu málsins og gerir nokkrar athugasemdir við verklag meirihluta byggðaráðsins. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynduðu meirihluta í Dalvíkurbyggð eftir sveitarstjórnarkosningar í lok maí. Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar var haldinn þann 18. júní síðastliðinn svo það hefur tekið nýjan meirihluta aðeins 43 daga að klára málið. „Það eru margar ár og lækir í byggðarlaginu og við settum þetta fram [í kosningabaráttunni] að við vildum láta gera allsherjarúttekt á þeim virkjanakostum sem fyrir væru í sveitarfélaginu og þá með það í huga að það væri hægt að nýta þessa raforku í sveitarfélaginu eða selja hana inn á kerfi Landsnets,“ segir Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar og oddviti lista Framsóknar og óháðra. Guðmundur Stefán Jónsson, sem situr í byggðaráði fyrir minnihluta í bæjarstjórn, undrast þessi vinnubrögð meirihlutans. Hann hafi ekkert vitað af aðdraganda þessa útboðs eða málavöxtu og því hafi hann ekki haft næg gögn undir höndum til að geta tekið afstöðu til málsins þegar það kom inn í byggðaráð. Því hafi hann setið hjá við afgreiðslu. „Ég veit ekkert af málinu fyrr en tilboð þriggja verkfræðiskrifstofa til að kanna virkjanakosti í Dalvíkurbyggð liggja fyrir byggðaráði á fimmtudaginn síðasta,“ segir Guðmundur. „Við í minnihlutanum vitum afar lítið af málinu og vorum ekki með við undirbúninginn. Einnig höfðum við ekki séð þetta útboð auglýst nokkurs staðar, ekki einu sinni á heimasíðu Dalvíkurbyggðar,“ segir Guðmundur, sem er oddviti J-listans. Bjarni segir það rétt að lítið samráð hafi verið haft við minnihlutann. Einnig hafi ekki verið um eiginlegt útboð að ræða heldur hafi verið sent bréf á þrjú fyrirtæki og óskað eftir tilboðum frá þeim. Spurður hvort ekki orki tvímælis að bæjarfélagið skuli greiða fyrir hagkvæmniathuganir smávirkjana sem yrðu í einkaeigu segir Bjarni svo ekki vera. „Þetta var einn af stóru póstunum í kosningabaráttunni. Ég tel að skattgreiðendur og kjósendur sem studdu okkur styðji okkur í þessu. Fólk er almennt sátt við þetta.“
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira