Verkalýðsfólk þarf að taka höndum saman Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar 28. júlí 2014 12:45 Vilhjálmur Birgisson, foringi verkalýðsfélags Akraness. Vísir/Anton
Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðsfélags Akraness segir launahækkanir forstjóra og stjórnenda fyrirtækja hrein og klár svik. Vilhjálmur vill að íslensk verkalýðshreyfing taki sér höndum saman, og krefjist réttlætis í kjarasamningum. Þetta kom fram í frétt Bylgjunnar í morgun. Í tekjublaði Frjálsrar verslunar koma fram tekjur Íslendinga um land allt. Athygli vakti við útgáfu blaðsins í ár að helst hafa laun forstjóra og stjórnenda hækkað. Hækkunin hjá stjórnendum nemur að meðaltali 40 prósentum, eða rúmlega 600 þúsund krónum á mánuði. Þetta finnst Vilhjálmi óásættanlegt.„Verkalýðsfélag Akraness gerði kröfu um að laun verkafólks myndi hækka um tuttugu þúsund krónur í síðustu kjarasamningum. Fyrir þau orð, var ég sem foringi verkalýðsfélagsins á Akranesi kallaður lýðskrumari, og nú koma stjórnendur fyrirtækja og fá hækkun sem nemur allt að 600 þúsund krónum,“ sagði Vilhjálmur.Vilhjálmur er ósáttur með auglýsingaherferð Samtaka atvinnulífsins. „Við skulum heldur ekki gleyma því að Samtök Atvinnulífsins réðust hér í mikla auglýsingaherferð í aðdraganda síðustu kjarasamninga þar sem talað var um að ef ekki væri talað saman á hófstilltum nótum, um launahækkun verkafólks, sem ekki mætti vera hærri en 2,8%, myndi hér ríkja óðaverðbólga,“ sagði Vilhjálmur einnig.Engin nýlunda Vilhjálmur segir það ekki nýtilkomið að komið sé fram við verkafólk á slíkan hátt. „Áttum okkur á einu - þetta er engin nýlunda. Ætíð þegar semja á um kaup og kjör þeirra tekjulægstu þá kemur þessi stefjalausi hræðsluáróður í hvert einasta sinn, um að hér muni allt fara fjandans til, ef launakjör íslensks verkafólks verða hækkuð, sem einhverju nemur.“ Að lokum hvetur Vilhjálmur verkalýðinn til samstöðu, og kallar á réttláta leiðréttingu launakjara. „Nú þarf íslensk verkalýðshreyfing að taka höndum saman, íslenskt verkafólk þarf að taka höndum saman, og við látum þetta óréttlæti ekki yfir okkur ganga öllu lengur. Þetta er ekki hægt.“
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira