Vilja nýtt húsnæði undir félagsmiðstöð Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 28. júlí 2014 07:15 Ungmenni á Hellissandi bregða á leik. Mynd/Dóra Unnars „
Nú bíðum við spenntir hvort samfélagið okkar verði ekki betra fyrir unga fólkið því þar er framtíðin.“ Þannig lýkur bréfi vinanna Ívars Reynis Antonssonar og Péturs Steinars Jóhannssonar til Snæfellsbæjar þar sem þeir biðla til bæjarins um betra húsnæði undir félagsmiðstöð sína. „Við Pétur Steinar erum mjög góðir vinir og höfum tekið eftir því við félagsmiðstöðina hvað hún er ógeðsleg,“ sagði Ívar Reynir í samtali við Fréttablaðið. „Við höfum oft kvartað yfir hvernig þetta er,“ bætir Pétur við. Klósettin eru ekki boðleg að sögn drengjanna, vatnið óhreint og vaskurinn ekki í lagi. „Svo eru göt á veggnum þar sem er ryk og köngulóarvefir,“ lýsir Pétur. Eða „mjög líklega heilsuspillandi aðstæður“, eins og þeir segja í bréfinu. „Það er skítur á gólfinu sem ekki er hægt að þrífa af, það er ekki hægt að vera á sokkum þannig að við erum alltaf í inniskóm sem félagsmiðstöðin á,“ útskýrir Ívar.Stærsta vandamálið er þó það að lítið er um að vera í félagsmiðstöðinni en drengirnir eru uppfullir af hugmyndum að skemmtilegri afþreyingu. „Við gerum ekki neitt, hver er bara í sínu horni í sínum síma. Maður er nóg í símanum á daginn.“ Þeir Pétur og Ívar hafa þegar fundið lausn á vandamálinu sem þeim þykir sanngjörn og vel til fundin. „Það er alveg geðveikt hús fyrir félagsmiðstöð á Hellissandi og það er gamla björgunarsveitarhúsið,“ segir Ívar. Húsið kallast Líkn og stendur autt eftir að björgunarsveitirnar á svæðinu sameinuðust. „Það sem við vorum að hugsa með nýju félagsmiðstöðinni er að þá væri hægt að hafa bakstursdag eða fara í fótbolta í félagsmiðstöðinni.“ Strákarnir benda einnig á að í nýja húsnæðinu væri hægt að hafa kósí- og bíóherbergi, setja upp körfuboltakörfu, nálgast boðlegt klósett og hreint vatn. Drengirnir hafa fengið svar frá bænum þar sem þeim er þakkað fyrir tillöguna, málið verði tekið til umhugsunar og nánara svar berist síðar.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira