Klórklúður í Vesturbæjarlaug Stefán Ó. Jónsson skrifar 31. júlí 2014 15:21 Tilkynningu er komið fyrir í anddyrinu þegar barnalauginni er lokað.
Barnalaugin í Vesturbæjarlaug hefur meira og minna verið lokuð undanfarnar tvær vikur vegna klórmagnsins í lauginni sem hefur ekki náð að uppfylla skilyrði heilbrigðiseftirlitsins.Hafliði Halldórsson, forstöðumaður Vesturbæjarlaugar, segir í samtali við Vísi að vandamálið sé til komið vegna bilunar í tölvukerfi, ein klórdælan hafi einfaldlega dottið út og því hafi tekið að vanta klór í barnalaugina. Unnið hefur verið að viðgerðum á síðustu dögum og búist er við að allt ætti að vera komið í samt lag í dag eða á morgun. „Þetta er í raun nýtt vandamál í ljósi aukinnar aðsóknar. Gömlu tækin eru ekki að bregðast nógu vel við öllum mannfjöldanum,“ segir Hafliði og bætir við að þetta sé sérstaklega bagalegt í ljósi þess að barnalaugin sé sú mest notaða í Vesturbæjarlaug. Ákveðið hafi verið að taka enga óþarfa áhættu og hefur barnalauginni því verið lokað þegar klórmagnið hefur farið niður fyrir lögbundna staðla. Ný og strangari reglugerð var samþykkt þess efnis árið 2012 og hafa fulltrúar heilbrigðiseftirlitsins haft vökult auga með þróun klórmagnsins allt frá því að bilana tók að gæta í klórdælunni þann 14. júlí. Frá því að sólin fór að sýna sig í höfuðborginni hefur aðsóknin í laugina margfaldast og því hefur ekki bætt úr skák að klórinn brennur hraðar upp í blíðviðri. Hafa sólþyrstir sundlaugagestir því þurft að láta sér aðra potta laugarinnar nægja.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira