Þriðja síðasta Þjóðhátíð Herjólfs Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. júlí 2014 12:14 Herjólfur. Vísir/Óskar P. Friðriksson
Samið hefur við norska fyrirtækið Polarkonsult A/S um hönnun nýrrar Vestmannaeyjaferju sem mun leysa Herjólf af hólmi. Hönnun á að ljúka í febrúarlok á næsta ári en reiknað er með að smíði ferjunnar ljúki síðla árs 2016. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Vegamálastjóri Hreinn Haraldsson skrifaði undir samninginn 28. júlí síðastliðinn. Samningsupphæðin er rúmlega 800 þúsund evrur eða um 124 milljónir króna. Innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, heimilaði í febrúar að auglýsa útboð um hönnun ferjunnar. Um það sá starfshópur um hönnun og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. Ríkiskaup annaðist auglýsingu útboðsins sem fór fram á Evrópska efnahagssvæðinu. Þrjú tilboð bárust en tvö þeirra reyndust ógild og því þriðja var hafnað þar sem það var langt yfir kostnaðaráætlun. Að tillögu ráðgjafa starfshópsins, Jóhannesar Jóhannessonar skipaverkfræðings, voru teknar upp samningaviðræður við norska fyrirtækið Polarkonsult A/S sem átti eina gilda tilboðið í hönnun ferjunnar. Samningurinn sem nú hefur verið undirritaður byggir á endurnýjuðu tilboði Polarkonsult og er samningsupphæðin svipuð og upphafleg kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Undirverktaki er Force Technology A/S. Reiknað er með að smíði skipsins verði boðin út í febrúar 2015 og henni verði lokið síðla árs 2016. Samkvæmt þeirri áætlun mun Herjólfur ferja gesti til og frá Þjóðhátíð í síðasta skipti sumarið 2016. Líkt og fram kemur í frétt á heimasíðu Polarkonsult þá er sérstæða verksins nokkur á alþjóða vísu þar sem veðuraðstæður utan við Landeyjahöfn eru erfiðar vegna mikillar öldu af hafi og smærri öldu af ströndinni auk sterks straums við mynni hafnarinnar. Þá er svo sem kunnugt er dýpi lítið, getur verið um 4,5 m, og því þörf á grunnristri ferju sem þarf þess utan að geta athafnað sig í 3,5 m hárri öldu.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira