Hleypur hálft maraþon í sjóstakki Kjartan Atli Kjartansson skrifar 31. júlí 2014 13:47 Kjartan mun vera kappkæddur í Reykjavíkurmaraþoninu. Mynd/Kjartan
Kjartan Þór Kjartansson ætlar að hlaupa hálft maraþon í sjóstakk til styrktar samtökunum Einstök börn í Reykjavíkurmaraþoninu þann 23. ágúst. Kjartan er sjómaður sem slasaðist illa á hendi í janúar, þegar hún varð undir þungri keðju. Hann segist vera mikið fyrir að standast erfiðar áskoranir og hafi - áður en hann slasaðist - verið búinn að stofna sérstaka vefsíðu þar sem fólk gat skorað á hann. „En eftir að ég slasaðist þurfti ég að hætta við. Ég fékk svokallaða grandarakeðju ofan á höndina, ætli það hafi ekki verið fimm tonn á keðjunni. Höndin fór mjög illa, allar sinar og taugar skemmdust. Ég er enn að jafna mig og það eina sem ég get eiginlega gert er að hlaupa," segir hann og bætir við að fólk hafi verið búið að skora á hann að klífa fjöll og fleira, á vefsíðu hans. „Ég get ekki beitt mér eins mikið og ég vildi. En ég get hlaupið og það er æðislegt að geta hlaupið og látið gott af sér leiða." Hann segist vilja styrkja samtökin Einstök börn, því þarf farið fram gott starf. „Já, börnin sem eru skjólstæðingar samstakanna eiga allt gott skilið. Ég vil styðja við þau og fjölskyldur þeirra."En hvernig er að eiginlega að hlaupa í sjóstakki? „Heitt," svarar Kjartan og hlær. Hann heldur áfram: „Ég er búinn að vera að hlaupa í hettupeysum til þess að venja mig á hitann sem kemur þegar maður hleypur í sjótstakk. Ég missi yfirleitt svona fjögur til sex kíló þegar ég hleyp svona kappklæddur. Sjóstakkurinn andar náttúrulega ekki neitt og ég þarf að vera í hlaupagallanum undir, svo ég meiði mig ekki þegar sjóstakkurinn nuddast upp við mig. Ég reikna með því að missa svona tíu kíló af vökva í þessu hlaupi." Kjartan hljóp tíu kílómetra í sjóstakk í fyrra og ætlar nú að tvöfalda vegalendina og gott betur. Hann heldur úti styrktarsíðu og hvetur fólk til að heita á sig og styðja þannig Einstök börn.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira