Drógu sig ekki úr samstarfi vegna sekta Ríkisskattstjóra Samúel Karl Ólason skrifar 31. júlí 2014 18:37 Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/GVA
Samtök atvinnulífsins hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þeir segja rangfærslur hafa verið í frétt í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Þar var sagt frá því að SA hafi dregið sig út úr samstarfi Ríkisskattstjóra, ASÍ og SA um sérstakt átak í skatteftirliti. Átakið var starfrækt undir yfirskriftinni: Stendur þú skil á þínu. „Í fréttinni var gefið í skyn að þessi ákvörðun SA hefði eitthvað með það að gera að fjölmörg þeirra fyrirtækja sem sektuð hefðu verið á síðasta ári af Ríkisskattstjóra væru jafnframt félagsmenn SA. Þær dylgjur eru ekki svaraverðar. Verra er að fréttin felur í sér grundvallarmisskilning á því samstarfi sem SA og ASÍ áttu við Ríkisskattstjóra með góðum árangri eins og réttilega hefur verið greint frá,“ segir í tilkynningu SA. Þá segir einnig að engin tilraun hafi verið gerð til að ná tali af forsvarsmönnum SA áður en fréttin hafi verið birt. „Samtökin vísa því alfarið á bug þeim dylgjum sem settar voru fram í frétt Bylgjunnar í hádeginu án nokkurra raka.“ Í tilkynningunni segir að samstarfið eigi uppruna sinn að rekja til samkomulags SA og ASÍ um innleiðingu vinnustaðaskírteina hér á landi. Ríkisskattstjóri hafi gengið inn í samstarfið seinna, til að kanna hvernig staðið væri að skattskilum viðkomandi fyrirtækja. „Samkomulag þetta var endurnýjað í þrígang, í síðasta sinn vorið 2013. Samstarf þetta gaf góða raun. Hins vegar var þátttaka SA bundin við tímabundið átak við innleiðingu vinnustaðaskírteina og um síðastliðin áramót var tekin sú ákvörðun að láta staðar numið. SA hafði varið um 20-25 milljónum króna árlega við þetta eftirlit og hlutverk samtakanna ekki að sinna eftirliti sem þessu ótímabundið.“ Þá segir að Ríkisskattstjóra hafi verið tilkynnt um ákvörðun SA og boðið að ráða til sín þá starfsmenn sem sinntu eftirlitinu. „Enda höfðu þeir staðið sig afar vel í starfi og samdóma álit aðila að vettvangsheimsóknir Ríkisskattstjóra hefðu skilað umtalsvert bættum skattskilum. Þetta fyrirkomulag skatteftirlits var hins vegar alfarið á forræði embættis Ríkisskattstjóra og því fráleitt að tengja ákvörðun embættisins um að hætta því, þeirri ákvörðun SA að leggja af fyrirtækjaheimsóknir vegna vinnustaðaskírteina.“ „Það er miður að Ríkisskattstjóri skuli hafa lagt af þessar heimsóknir enda skiluðu þær umtalsverðum árangri. Samtök atvinnulífsins hafa í starfi sínu ávallt lagt áherslu á heiðarlega viðskiptahætti fyrirtækja hér á landi. Skattskil fyrirtækja eru hornsteinn heiðarlegra viðskiptahátta og SA hafa ávallt barist ötullega gegn svartri atvinnustarfsemi enda skekkir hún samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem standa heiðarlega að sínum rekstri.“
Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Fleiri fréttir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Sjá meira