Fullgilding bíður breytinga á lögum Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. ágúst 2014 07:00 Kröfuganga í Líbanon. Kona heldur á lofti kröfuspjaldi í göngu í Beirút í aprílbyrjun þar sem líbönsk stjórnvöld voru hvött til að skrifa undir lög sem tækju á heimilisofbeldi. Nordicphotos/AFP
Ísland var á meðal fyrstu 13 aðildarríkja Evrópuráðsins til að undirrita samning um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi. Skrifað var undir samninginn í Istanbúl í Tyrklandi 11. maí 2011. Samningurinn tók í gær gildi í 11 löndum. Ísland er þó ekki í þeim hópi. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er fullgilding alþjóðasamninga tímafrek og kallar á skoðun á íslenskri löggjöf af hálfu viðkomandi fagráðuneytis og í mörgum tilvikum á lagabreytingar. Í tilviki Istanbúl-alþjóðasamningsins er það fagráðuneyti innanríkisráðuneytið. Samkvæmt heimildum blaðsins eru kvaðirnar sem samningurinn leggur á ríki svo viðamiklar að kallar á breytingar á lögum hér. Unnið hefur verið að frumvarpi um breytingar í innanríkisráðuneytinu, án þess þó að það hafi enn litið dagsins ljós. Ríki sem fullgilda samninginn skuldbinda sig meðal annars til að þjálfa sérfræðinga í nánum samskiptum við fórnarlömb; standa reglulega að kynningarherferðum til vitundarvakningar um ofbeldið og skaðsemi þess; taka markviss skref til aukins kynjajafnréttis og framleiða kennsluefni um ofbeldislausa úrlausn vandamála í nánum samböndum; koma á fót meðferðarúrræðum fyrir gerendur í heimilisofbeldi og fyrir kynferðisofbeldismenn; starfa náið með sjálfstæðum félagasamtökum; og vinna með fjölmiðlum og einkageiranum í að útrýma staðalímyndum og ýta undir gagnkvæma virðingu fólks í samskiptum. Þegar samningurinn var undirritaður hjá Evrópuráðinu kom fram að hann væri fyrsti bindandi alþjóðasamningurinn sem tæki heildstætt á baráttunni gegn ofbeldi gegn konum.Ísland meðal 13 fyrstu landa Auk Íslands undirrituðu Istanbúl-samninginn í maí 2011 löndin Austurríki, Finnland, Frakkland, Grikkland, Lúxemborg, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Svartfjallaland, Svíþjóð, Tyrkland og Þýskaland. Síðan þá hafa 23 lönd til viðbótar skrifað undir og eru þau því 36 í allt. Fjórtán lönd hafa svo staðfest samninginn og fékk hann lagagildi í ellefu þeirra í gær, en það eru Albanía, Andorra, Austurríki, Bosnía og Hersegóvína, Danmörk, Ítalía, Portúgal, Serbía, Spánn, Svartfjallaland og Tyrkland. Fyrsta nóvember næstkomandi tekur samningurinn svo einnig gildi í Frakklandi, Svíþjóð og á Möltu.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira