„Finnst mjög rangt að peningar stöðvi fólk við að reyna eignast barn“ Lillý Valgerður Pétursdóttir og Stefán Árni Pálsson skrifar 11. október 2014 14:34 Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingkona Framsóknarfokksins.
Mikilvægt er að styðja betur við þá sem fara í tæknifrjóvganir með því að draga úr kostnað við slíkar meðferðir. Þetta segir þingmaður Framsóknarflokksins sem hefur ásamt hópi þingmanna lagt fram tillögu á Alþingi þessa efnis. Það eru sjö þingmenn úr fjórum stjórnmálaflokkum sem leggja fram tillöguna. Þingmennirnir vilja að heilbrigðisráðherra láti endurskoða reglur um greiðsluþátttöku ríkisins í tæknifrjóvgunarmeðferðum. Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins er ein þeirra. Hún segir mikilvægt að stutt verði betur við fólk sem fer í tæknifrjóvganir þar sem kostnaður við slíkar meðferðir sé oft mikill. Í dag þurfi fólk til að mynda að greiða alveg sjálft fyrstu glasafrjóvgunarmeðferðina sem það fer í ólíkt því sem er í löndunum víða í kringum okkur. „Það er talið að 15-20 prósent para glími við einhverskonar ófrjósemi og það þekkja allir, eða hafa lent í þessu sjálfir, einstaklinga sem hafa glímt við þetta,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir. „Ég held að þetta standi mörgum mjög nærri.“ Tæknifrjóvgunarmeðferðir fara fram á höfuðborgarsvæðinu og því þurfa mjög margir að leggja út í nokkurn ferðakostnað. Silja segir mikilvægt að koma til mót við fólk sem þarf að leggja út í mikinn ferðakostnað vegna meðferðanna. „Þegar fólk fær þennan úrskurð að það geti ekki eignast börn sjálft þá er það oft mikill hjalli fyrir það að hefja meðverðina. Þetta kostar nokkur hundruð þúsund, þannig að það er mjög mikilvægt að fólk geti allavega hafið meðferðir. Mér finnst mjög rangt að peningar stöðvi fólk við að reyna eignast barn, sérstaklega þar sem þetta er sjúkdómur, ófrjósemi er sjúkdómur.“
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira