Vilja ákvæði um keimlíkindi burt Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 5. maí 2014 05:00 Samkvæmt frumvarpi um ÁTVR fær fyrirtækið heimild til að meta hvenær hætta sé á að fólk ruglist á áfengum og óáfengum drykkjum. Ákvæðið hefur verið gagnrýnt. Fréttablaðið/GVA
Samtök iðnaðarins telja að með svokölluðu keimlíkindaákvæði í frumvarpi til laga um ÁTVR sé verið að þvinga framleiðendur áfengra drykkja til að velja á milli þess að markaðssetja áfenga vöru eða ófáfenga hér á landi. Þeir telja að önnur hvor varan verði útilokuð á markaði hér á landi. Þá telja samtökin að ákvæði frumvarpsins um keimlíkindi séu í andstöðu við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum. Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur lokið umfjöllun um frumvarp til laga um ÁTVR. Frumvarpið hefur hlotið misjafnar viðtökur en það hefur verið gagnrýnt að ÁTVR hafi of víðtækar heimildir til að hafna því að taka taka áfengi í sölu. Efnahags- og viðskiptanefnd segir í álitinu að keimlíkindaákvæði frumvarpsins þurfi að vera afdráttarlausara og miða að því að heimila ÁTVR að hafna því að taka til sölu áfengi þegar raunveruleg ruglingshætta virðist vera yfirvofandi. Samkvæmt frumvarpinu á ÁTVR að meta það hvenær hætta sé á að fólk ruglist á áfengum og óáfengum tegundum. Markmið keimlíkindaákvæðisins sé að tryggja að ekki séu á boðstólum áfengar vörur sem líkjast um of óáfengum vörum sem seldar eru eða auglýstar á almennum markaði hérlendis. Þá verði ákvæðið að standast kröfur ESA og Evrópuréttarins. Ragnheiður Héðinsdóttir, forstöðumaður matvælasviðs Samtaka iðnaðarins, segir að sú breyting sem nefndin leggur til á keimlíkindaákvæðinu sé þýðingarlaus. „Eftir sem áður er ÁTVR falið að meta hvenær vörur séu svo líkar að verslunin verði að hafna því að selja þær,“ segir Ragnheiður og segir að Samtök iðnaðarins telji að það eigi að fella ákvæðið um keimlíkindi á brott úr frumvarpinu.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Sjá meira