Innlent

Marijúana í Mosfellsbæ

Gissur Sigurðsson skrifar
Við húsleit fannst á annan tug kannabisplantna, sem lögregla lagði hald á.
Við húsleit fannst á annan tug kannabisplantna, sem lögregla lagði hald á. visir/stefán
Þegar lögreglan stöðvaði ökumann á fertugs aldri  í Mosfellsbæ á fimmta tímanum í morgun, kom í ljós að hann var í annarlegu ástandi vegna kannabisreykinga.

Það leiddi til þess að húsleit var gerð heima hjá honum og fannst þar á annan tug kannabisplantna, sem lögregla lagði hald á. Maðurinn var vistaður í fangageymnslu og verður rannsókn málsins fram haldið í dag. Þá stóðu lögreglumenn karlmann að kannabisreykingum þar sem hann sat í makindum  í bíl sínum á Háskólalóðinni. Við leit í bílnum fanst líka lítilræði af amfetamíni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×