Innlent

Munu ekki láta deiluna valda truflunum á flugi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. Vísir/HEIÐA
Viðræður standa yfir við þessa níu starfsmenn og við höfum fulla trú á því að þeim ljúki í góðri sátt,“ segir Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair um yfirvofandi verkfall flugumsjónarmanna flugfélagsins sem Vísir greindi frá fyrr í dag.

Flugumsjónarmenn gegna mikilvægu hlutverki hjá flugfélögum heimsins. Þeir sjá til að mynda um alla leiðaútreikninga fyrir flug, reikna út eldsneytisþörf og skipuleggja flug vélanna. Þeir sækja einnig um lendingartíma, leyfi og undirbúa þannig allar flugferðir fyrirtækjanna, Icelandair sem annarra. 

Verkfallsboðun flugumsjónarmanna Icelandair, sem lögð var inn á mánudag, kveður á um sex tímabundin verkföll. Þau eru:

11. september frá klukkan 07:00 til 19:00

14. september frá klukkan 07:00 til 19:00

18. september frá klukkan 07:00 til 19:00

20. september frá klukkan 07:00 til 19:00

25. september frá klukkan 07:00 til 07:00

28. september frá klukkan 07:00 til 07:00

Þrát fyrir að um víðtækar vinnustöðvanir séað ræða, það er ef ekki tekst að semja fyrir 11. september, segir Guðjón að verkfallið muni að öllum líkindum ekki hafa mikil áhrif á flugáætlanir farþega.

„Við munum ekki láta þessa deilu valda truflunum á flugi, við getum fullvissað fólk um það,“ segir Guðjón Arngrímsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×