Vill að stjórn Mjólkursamsölunnar segi af sér Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 19. janúar 2014 18:03
Klúður og klaufaskapur segja kúabændur á Suðurlandi um þá ákvörðun Mjólkursamsölunnar að flytja inn írskt smjör fyrir jólin. Geir Ágústsson, kúabóndi í Gerðum í Flóahreppi fer fram á að stjórn Mjólkursamsölunnar segi af sér Mjólkursamsalan hefur verið mikið í umræðunni á nýju ári eftir innflutning á írsku smjöri fyrir jólin og innflutning á 7,7 tonnum af osti árið 2009 til bræðslugerðar, sem neytendur voru ekki látnir vita af. Kúabændur hafa lítið blandað sér í þessa umræða en það er alveg ljós á samtali við marga þeirra að þeir eru ekki sáttir við fyrirtækið sitt. Valdimar Guðjónsson er formaður Félags kúabænda á Suðurlandi en hann er bóndi í Gaulverjabæ í Flóahreppi. Hann er ekki hress með írska smjörið og MS. „Nei, ég er alls ekki sáttur með það, þetta er ferlegt klúður að lenda í þessu, við erum mjög ósáttir við hvað seint var brugðist við, MS sofnaði aðeins á verðunum með að gera spár og slíkt“. Geir er líka óánægður með MS. „Þetta eru klaufaskapur, eintóma klaufaskapur í þessum spekingum öllum. Ég er búin að segja þeim þetta fyrir mörgum árum að þeir eiga alltaf að láta okkur vera svolítið umfram. Við verðum að eiga hey umfram það sem við þurfum einn vetur, við þurfum að vera öruggir. Auðvitað á MS að eiga nóga mjólk og mjólkurvörum, vinna úr þeim og hafa nógan lager, þetta er klaufaskapur“. Geir er á því að einhverjir þurfi að taka pokann sinn hjá MS „Þeir ættu náttúrulega að hætta í stjórn sem eru þarna að stjórna þessu fyrirtæki,draga sig í hlé og hleypa einhverju öflugra fólki inn“. Eru kúabændur almennt ósáttir við þetta ? „Ég held það og ég held að menn séu mjög ósáttir við þennan sauðaragang. Ég var búin að sjá þetta fyrir í sumar. Okkur bauðst að selja kvígur hérna Gerðabændum, það var hringt í okkur og menn vildu kaupa kvígur. Ég sagði við Stefán son minn, við skulum ekki selja kvígurnar, við skulum eiga þær því það verður þörf fyrir mjólkina, sennilega verður borgað betur en nokkur tímann áður. Ég hef ekki hugmynd um hver hvíslaði þessu að mér en ég vissi þetta“, sagði Geir.
Mest lesið Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Milljón dalir eða meira fyrir náðun Erlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Erlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Innlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent „Gamla góða Ísland, bara betra“ Innlent Fleiri fréttir Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Sjá meira