Fótbolti

Þrenna frá Shaqiri og Sviss komst áfram

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Xherdan Shaqiri fagnar öðru marki sínu.
Xherdan Shaqiri fagnar öðru marki sínu. Vísir/Getty
Xherdan Shaqiri, leikmaður Bayern München, fór á kostum er Sviss valtaði yfir Hondúras, 3-0, í lokaumferð E-riðils á HM í fótbolta í kvöld.

Shaqiri gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörkin, þar af tvö í fyrri hálfleik. Fyrsta markið var virkilega glæsilegt en hann skrúfaði þá langskot fyrir utan teig í samskeytin fjær.

Svisslendingurinn er annar leikmaður Bayern sem skorar þrennu á HM en Þjóðverjinn Thomas Müller afrekaði það í fyrstu umferð riðlakeppninnar á móti Portúgal.

Sviss þurfti að vinna leikinn til þess að komast áfram og vonast til þess að Ekvador myndi ekki vinna Frakkland sem varð raunin.

Lærisveinar Ottmarz Hitzfelds mæta Lionel Messi og félögum í Argentínu í 16 liða úrslitunum en leikurinn fer fram 1. júlí í Sao Paulo.

vísir/getty
vísir/getty
vísir/getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×