Læknar segja launakröfur hóflegar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 25. október 2014 20:58
Enginn samningafundur er fyrirhugaður fyrr en á mánudaginn og enn ber mikið í milli í samningaviðræðunum. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að læknar færu fram á margra tuga prósenta launahækkun. Ekki verði samið á þeim forsendum þar sem slíkt geti komið kjaramálum í almennt uppnám. ,,Við höfum aldrei farið í grafgötur með það eða í launkofa að við erum að fara fram á umtalsverðar hækkanir. Það er ekki okkar mat að þetta sé óraunhæft, annars myndum við aldrei setja fram þær kröfur sem við gerum í kröfugerðinni, en við höfum ekki farið út í prósentur í fjölmiðlum,“ segir Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands. Hann segir lækna óánægða með launakjör sín. Læknar hafi flúið land og aðrir ekki snúið aftur heim að námi loknu. Þannig séu að myndast göt í kerfinu. Allir þekki umræðuna. Erfitt sé að manna deildir á spítalanum eins og krabbameinsdeildina og þá séu læknastöður í heilu landshlutunum mannaðar með afleysingalæknum. Þetta telji félagið ekki forsvaranlegt til lengdar. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að verkfall hefjist á miðnætti annað kvöld. ,,Ég held að það sé ekkert sem geti afstýrt því úr þessu,“ segir Þorbjörn Jónsson.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira