Lífið

Hógværasta stéttin á Íslandi vekur athygli á sér

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Lyfjafræðingur „Við ætlum að vera sýnileg, ræða við gesti og gangandi og hvetja fólk til að nýta sér þjónustu okkar,“ segir Þórunn. Mynd/úr einkasafni
Lyfjafræðingur „Við ætlum að vera sýnileg, ræða við gesti og gangandi og hvetja fólk til að nýta sér þjónustu okkar,“ segir Þórunn. Mynd/úr einkasafni
„Við viljum vekja athygli á okkur og láta vita að erum til taks. Ætli við séum ekki ein hógværasta stéttin á Íslandi?“ segir Þórunn K. Guðmundsdóttir, klínískur lyfjafræðingur og hópstjóri hjá Sjúkrahúsapóteki Landspítalans. Alþjóðadagur lyfjafræðinga er í dag.

Yfirskrift hans er: Aðgangur að lyfjafræðingum er aðgangur að heilsu. Tilgangur dagsins er að minna á mikilvægi lyfjafræðinga sem stéttar enda eru þeir sérfræðingar og í nánu samstarfi við lækna, hjúkrunarfræðinga og aðrar heilbrigðisstéttir í að gæta öryggis og hagkvæmni í lyfjanotkun einstaklinga.

Lyfjafræðingar ræða í auknum mæli beint við sjúklinga og leysa ýmis lyfjatengd vandamál. Þau geta verið tiltölulega einföld eins og erfiðleikar við að kyngja lyfjum, upp í flóknari mál eins og aukaverkanir. „Við veitum upplýsingar um lyf, förum yfir skammtastærðir og viljum hvetja almenning til að taka ábyrgð á sínum lyfjamálum. Margir hætta að nota lyfin sín af einhverjum ástæðum og eru ekkert að láta lækninn sinn vita af því,“ segir Þórunn.

Hún segir starf lyfjafræðinga vera þýðingarmikið og nefnir sérstaklega starf sjúkrahúslyfjafræðinga. „Læknum fer fækkandi á sjúkrahúsunum, lyf verða sífellt flóknari og dýrari og þá gegna lyfjafræðingar enn stærra hlutverki en áður í þverfaglegri teymisvinnu.“

Á Íslandi eru starfandi um 400 lyfjafræðingar, þeir fyrstu útskrifuðust frá Háskóla Íslands árið 1987. Flestir starfa í apótekum eða um 80%, þar á eftir á sjúkrahúsum og í lyfjafyrirtækjum.

Íslenskir lyfjafræðingar ætla að verða í Kringlunni á Landspítalanum frá klukkan 10-15 í tilefni dagsins. „Við ætlum að vera sýnileg, ræða við gesti og gangandi og hvetja fólk til þess að nýta sér þjónustu okkar. Við erum yfirleitt falin á bak við í apótekunum, en við viljum vekja athygli á því að fólk getur alltaf talað við okkur þar að kostnaðarlausu. Viljum sérstaklega hvetja þá sem þurfa til dæmis að hjálpa öldruðum fjölskyldumeðlimum með lyfin sín, að leita til okkar,“ segir Þórunn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.