Laxarnir gætu verið úr mismunandi sleppingum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. september 2014 14:45 Allur lax sem alinn er við Ísland er af norsku kyni. Vísir/Sigurjón
Rannsókn Veiðimálastofnunar fyrir Fiskistofu á löxum veiddum í Patreksfirði í sumar hefur leitt í ljós að laxarnir voru eldislaxar af norskum uppruna, líkt og lax sem notaður er í sjókvíaeldi á Íslandi. Ekki er hægt að útiloka að laxarnir hafi komið úr mismunandi sleppingum. Laxarnir voru allir með nokkuð þroskaða kynkirtla og virðast flestir hafa stefnt á hrygningu í haust. Tilkynnt var um slys þegar eldislaxar sluppu úr sláturkví Fjarðarlax í nóvember á síðastliðnu ári. Fyrirtækið tilkynnti að 200 laxar hefðu sloppið. Frá þessu er greint á vef Veiðimálastofnunar. Um miðjan júlí bárust Veiðimálastofnun 20 laxar úr veiði í Patreksfirði til upprunagreiningar og til greiningar á kynþroska. Rannsókn á erfðasamsetningu og útliti laxanna staðfesti eldisuppruna fiskanna. Stærð kynkirtla benti til að hluti þeirra stefndi á hrygningu í haust, mögulega allir. Í lok ágúst bárust Veiðimálastofnun 45 laxar til rannsóknar úr veiði í Patreksfirði. Ekki þótti ástæða til að erfðagreina laxana þar sem 43 þeirra báru greinileg eldiseinkenni. Stærð kynkirtla benti til að allir stefndu þeir á hrygningu í haust. Holdastuðull fiskanna var hærri í ágúst en í júlí, öfugt við það sem búast hefði mátt við þar sem laxinn var í litlu eða engu æti þegar hann var veiddur. Ekki er hægt að útiloka að laxarnir hafi komið úr mismunandi sleppingum. Einnig er sá möguleiki fyrir hendi að eldislaxar með verra holdafar leiti fyrr upp í ár. Í tilkynningu frá Veiðumálastofnun kemur fram að reynsla Norðmanna og Skota af sjókvíaeldi á laxi sýni að lax sleppur úr kvíum og eldislax blandast villtum laxastofnum. Nú hafi kynþroska norskur eldislax sloppið úr eldi á Íslandi. Stefnt sé að auknu laxeldi og því megi gera ráð fyrir að slíkir atburðir endurtaki sig og verði tíðari. „Eldislaxinn sem veiddist í Patreksfirði var með áberandi ytri einkenni enda slapp hann sem fullorðinn lax. Hins vegar getur unglax sem sleppur úr sjókví verið án ytri einkenna er hann leitar úr hafi í ár til að hrygna. Slíkur einkennalaus lax er stór hluti þess eldislax sem gengur í ár í Noregi og getur hann leitað í ár í mikilli fjarlægð frá eldisstöð,“ segja forsvarsmenn Veiðimálastofnunar. Brýnt sé að fylgjast með mögulegum áhrifum eldislax á íslenska stofna, meðal annars erfðablöndun og umfangi hennar. „Veiðimálastofnun hefur með styrk frá AVS unnið skýrslu þar sem kynnt er erfðafræðileg aðferð til að greina eldislax frá villtum löxum og greina erfðablöndun milli þeirra. Í skýrslunni er einnig gerð tillaga að því hvernig vakta megi möguleg erfðafræðileg áhrif vegna laxeldis.“ Skýrslurnar sem vísað er í má nálgast hér að neðan.
Tengdar fréttir Alvarlegar athugasemdir við skýrslu um fiskeldi Landssamband veiðifélaga gerir alvarlegar athugasemdir við skýrslu nefndar um leyfisveitingar og eftirlit í fiskeldi. Sérstaklega hvað varðar merkingar á eldislaxi. 14. júlí 2014 08:00 Merkja norskan lax sem skoskan Reynt er að villa um fyrir neytendum með röngum upprunamerkingum. 12. ágúst 2014 11:38 Viðskiptabann á Noreg ógnar ferskfiskmörkuðum Íslands Norðmenn munu vegna bannsins að öllum líkindum beita sér fyrir því enn meira á öðrum mörkuðum sem íslenskir seljendur eru á. 10. ágúst 2014 14:35 Þrítugföldun útflutningsverðmæta á áratug Á aðeins áratug hafa viðskipti með sjávarafurðir á milli Íslendinga og Rússa tugfaldast. Rússneski markaðurinn fyrir íslenskar sjávarafurðir vex hvað hraðast. Norsk fyrirtæki fluttu 300.000 tonn af sjávarafurðum til Rússlands í fyrra og innflutningsbann því áhyggjuefni þar. 13. ágúst 2014 09:26 Íslensk fisksölufyrirtæki uggandi vegna viðskiptabanns Áhrif viðskiptabanns Rússa á Norðmenn getur haft mikil áhrif á íslensk fyrirtæki í fiskframleiðslu og útflutningi á fiski. Þetta segir Jón Steinn Elíasson formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda. 10. ágúst 2014 19:18 Eldisfiskur veiðist í ósi við Patreksfjörð Fiskur, sem að öllum líkindum slapp úr eldiskvíum Fjarðalax á Patreksfirði síðasta vetur, veiðist nú í Ósárósi í botni fjarðarins. Laxveiðimenn segja þetta sanna að eldisfiskur lifi af í hafinu. Fjarðalax segir þetta engin áhrif hafa á laxastofninn. 15. júlí 2014 11:00 Skýringar fiskeldisfyrirtækja ótrúverðugar Orri Vigfússon, formaður NASF Verndarstjóðs villtra laxastofna, hefur óskað eftir því við umhverfis- og auðlindaráðherra, að tafarlaust verði farið í óháða rannsókn á því fiskeldi sem nú fari fram á Vestfjörðum. 18. ágúst 2014 15:57 200 eldislaxar sluppu úr kví Lítil slysaslepping varð hjá Fjarðalaxi í nóvember þegar 200 eldislaxar sluppu úr sláturkví. Enginn lax veiddist aftur. Eldisstjóri fyrirtækisins segir útilokað að laxinn gangi í laxveiðiár. 1. apríl 2014 07:00 Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira
Alvarlegar athugasemdir við skýrslu um fiskeldi Landssamband veiðifélaga gerir alvarlegar athugasemdir við skýrslu nefndar um leyfisveitingar og eftirlit í fiskeldi. Sérstaklega hvað varðar merkingar á eldislaxi. 14. júlí 2014 08:00
Merkja norskan lax sem skoskan Reynt er að villa um fyrir neytendum með röngum upprunamerkingum. 12. ágúst 2014 11:38
Viðskiptabann á Noreg ógnar ferskfiskmörkuðum Íslands Norðmenn munu vegna bannsins að öllum líkindum beita sér fyrir því enn meira á öðrum mörkuðum sem íslenskir seljendur eru á. 10. ágúst 2014 14:35
Þrítugföldun útflutningsverðmæta á áratug Á aðeins áratug hafa viðskipti með sjávarafurðir á milli Íslendinga og Rússa tugfaldast. Rússneski markaðurinn fyrir íslenskar sjávarafurðir vex hvað hraðast. Norsk fyrirtæki fluttu 300.000 tonn af sjávarafurðum til Rússlands í fyrra og innflutningsbann því áhyggjuefni þar. 13. ágúst 2014 09:26
Íslensk fisksölufyrirtæki uggandi vegna viðskiptabanns Áhrif viðskiptabanns Rússa á Norðmenn getur haft mikil áhrif á íslensk fyrirtæki í fiskframleiðslu og útflutningi á fiski. Þetta segir Jón Steinn Elíasson formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda. 10. ágúst 2014 19:18
Eldisfiskur veiðist í ósi við Patreksfjörð Fiskur, sem að öllum líkindum slapp úr eldiskvíum Fjarðalax á Patreksfirði síðasta vetur, veiðist nú í Ósárósi í botni fjarðarins. Laxveiðimenn segja þetta sanna að eldisfiskur lifi af í hafinu. Fjarðalax segir þetta engin áhrif hafa á laxastofninn. 15. júlí 2014 11:00
Skýringar fiskeldisfyrirtækja ótrúverðugar Orri Vigfússon, formaður NASF Verndarstjóðs villtra laxastofna, hefur óskað eftir því við umhverfis- og auðlindaráðherra, að tafarlaust verði farið í óháða rannsókn á því fiskeldi sem nú fari fram á Vestfjörðum. 18. ágúst 2014 15:57
200 eldislaxar sluppu úr kví Lítil slysaslepping varð hjá Fjarðalaxi í nóvember þegar 200 eldislaxar sluppu úr sláturkví. Enginn lax veiddist aftur. Eldisstjóri fyrirtækisins segir útilokað að laxinn gangi í laxveiðiár. 1. apríl 2014 07:00