Úrkoma alla daga nema tvo í júní Linda Blöndal skrifar 18. júlí 2014 18:21
Eftirspurn eftir sólarlandaferðum hefur aukist mjög mikið á undanförnum dögum. Sólskinsstundir í Reykjavík hafa ekki verið færri í 19 ár og úrkoman hefur ekki verði meiri síðan samfelldar mælingar hófust árið 1920, segja tölur Veðurstofu Íslands. Júní síðastliðinn er í hópi úrkomusömustu júnímánaða sem vitað er um í Reykjavík og það sem af er júlímánuði hefur verið úrkoma alla daga nema tvo hér sunnanlands. Ekki virðist útlit fyrir miklar breytingar nema í einstaka landshluta.Síðasti mánuður var reyndar sögulega hlýr um allt land og ekkert sérlega vindasamur samkvæmt tölum Veðurstofunnar. Meðalhitinn í Reykjavík var rúmar elllefu gráður, einu stigi meira en undanfarin tíu ár. Meðalhitinn á landinu hefur verið á bilinu átta til tólf stig.Fólk rýkur til sólarlandaJúlímánuður byrjaði með margra daga lægðargangi yfir landið allt. Og það er úrkoman sem hefur núna mestu áhrifin á ferðir Íslendinga í sumarfríi enda varla hundi út sigandi og það rignir nánast upp á hvern einasta dag á höfuðborgarsvæðinu. Ferðskrifstofur sem selja sólarlandaferðir finna fyrir mikilli ásókn núna í sólarlandaferðir og anna vart eftirspurn, aukningin er um meira en fimmtung miðað við í fyrra. Margrét Helgadóttir, framkvæmdastjóri Úrval útsýn sagði í fréttum Stöðvar tvö í kvöld að um tuttugu prósenta aukning hafi verið á sölu ferða. Sama segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Vita ferðaskrifstofu og að fólk panti með mjög stuttum fyrirvara. Algengt verð fyrir sólarlandaferð fyrir fjögurra manna fjölskyldu í tvær vikur er á bilinu sex til sjö hundruð þúsund krónur og eru margar þeirra keyptar með örstuttum fyrirvara, fáist sæti það er að segja.Úrkoma ekki meiri síðan 1920 Eins og reikna má með þá hafa sólarstundirnar í júní líka verið mun færri víðast hvar um landið en áður. Sólskinsstundir í Reykjavík hafa ekki verið færri í 19 ár og úrkoman þar í sama mánuði hefur ekki verði meiri síðan samfelldar mælingar hófust árið 1920. Veðurstofan gefur ekki út veðurspá nema fyrir næstu tíu daga en búast má þó við eitthvað minni úrkomu í ágúst, samkvæmt veðurfræðingi þar.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira