Pellegrini: Bara eitt lið í Manchester á þessu tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2014 09:45 Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City. Vísir/Getty
Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City, var kokhraustur á blaðamannafundi fyrir leikinn á móti Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld. Pellegrini var spurður út í stöðuna á Manchester-liðunum, City er á lífi í öllum keppnum en United er á allt öðrum stað en fólk er vant. „Ef við skoðum þetta tímabil þá er bara eitt lið í Manchester-borg. Það er samt ekki hægt að gleyma því sem United hefur gert í gegnum tíðina," sagði Pellegrini. „Við ætlum að vaxa með því að vinna marga titla, ekki bara heima fyrir heldur einnig alþjóðlega titla," sagði Pellegrini. Framundan er risaleikur á móti spænsku meisturunum í Barcelona í kvöld. „Lionel Messi er besti leikmaður heims en Barcelona er ekki bara Messi. Þú getur dekkað Messi stíft og þá munu aðrir leikmenn þeirra klára leikinn," sagði Pellegrini. „Þetta hefur verið gott tímabil hingað til og nú verðum við bara að klára það af sama krafti. Eitt af markmiðum okkar er að ná langt í Meistaradeildinni vitandi það að við erum að fara að mæta einu mikilvægasta knattspyrnufélagi heims," sagði Pellegrini. Leikur Manchetser City og Barcelona hefst klukkan 19.45 í kvöld og er í beinni á Stöð 2 Sport. Klukkan 19.10 hefst upphitun Hjartar Hjartarsonar fyrir leiki kvöldsins en þá mætast einnig Bayer Leverkusen og Paris Saint Germain.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Reese rífur í sig metin Körfubolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Sjá meira