Íslendingar þrá sólina Ellý Ármanns skrifar 25. júlí 2014 10:30 Kristbjörg Kristjánsdóttir.
Íslendingar eru margir hverjir langþreyttir á rigningunni sem hefur einkennt veðurfarið hér á landi í allt sumar. Við spurðum Kristbjörgu Kristjánsdóttur hjá Sumarferðum hvort eftirspurnin sé til staðar þegar kemur að sólarlandaferðum hjá landanum.Hverju eru Íslendingar helst að leita eftir nú þegar rignir nánast daglega hér á landi? „Þeir eru að leita eftir því að komast í sól og sumaryl, hvíla sig frá amstri hversdagsins og njóta sín í þægilegu umhverfi. Sumir vilja liggja á sundlaugarbakkanum og kíkja út á lífið á kvöldin meðan aðrir vilja klífa fjöll og fara snemma að sofa. Allt þetta þarf að vera í boði fyrir þjóð sem fær enga sól svo allir geti fundið sér eitthvað við sitt hæfi," segir Kristbjörg og heldur áfram: „Það er skylda okkar sem ferðaskrifstofa á Íslandi að bregðast við þessum veðurfarslegu aðstæðum og bjóða upp á fjölbreyttar ferðir á viðráðanlegu verði." „Við finnum fyrir því að viðskiptahópur okkar er að stækka og þörfin fyrir fjölbreytni í sólarlandaferðum er áskorun sem við tökum fagnandi. Rigningasumrin eru svo sannarlega að hafa áhrif á okkar ferðamenningu hvort sem hún er tímabundin eða komin til að vera."Ferðirnar seljast hratt upp „Sumarið hefur verið annríkt og ferðirnar seljast hratt upp. Við höfum verið dugleg að bæta við flugum og gistingum og eigum ennþá dásamlegar síðsumarsferðir til Spánar, Tyrklands og á Tenerife."Íslendingar þrá sól „Sumarferðir munum fljúga í allan vetur til Tenerife og Gran Canaria. Flogið er vikulega til Tenerife og frá miðjum janúar verður flogið tvisvar í viku bæði til Tenerife og Gran Canaria en Tenerife er okkar ástsælasti áfangastaður. Fyrsta beina leiguflugið milli Íslands og suður-Tenerife var í desember árið 2005 og var það flug á vegum Sumarferða. Má því segja að Sumarferðir séu frumkvöðlar í reglulegum ferðum til Tenerife," segir hún.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Fleiri fréttir Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Sjá meira