Motta: Hitinn lagði Ítalíu ekki Kostaríka Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 22. júní 2014 17:30 Motta að grillast í hitanum vísir/afp
Ítalski miðjumaðurinn Thiago Motta segir óbærilegan hitann í Recife í Brasilíu vera einu ástæðuna fyrir því að Ítalía tapaði 1-0 fyrir Kostaríka í heimsmeistarakeppninni í fótbolta. Ítalía lagði England í fyrstu umferð riðlakeppninnar en náði sér aldrei á strik gegn Kostaríka og varð að játa sig sigraða. Motta sagði fyrir leikinn að leikmenn Kostaríka væru vanari erfiðum aðstæðum og hann segir það hafa komið á daginn. „Þetta er ekki afsökun, þetta er sannleikurinn,“ sagði Motta við fjölmiðla eftir leikinn í Recife. „Það var mikill kraftur í þeim bæði með og án bolta. Ég veit ekki hvort Ítalía hefði unnið ef leikurinn hefði verið flautaður á síðar um daginn en hann hefði verið öðruvísi. Ef hitinn hefði verið í lagi fyrir alla eins og þegar Úrúgvæ mætti Englandi í 14 gráðum þá hefðum við séð öðruvísi leik. „Til dæmis á móti Englandi. Þegar við vorum með boltann gátu þeir ekki pressað okkur hátt eins og þeir eru vanir og þegar þeir voru með boltann gátum við ekki pressað á þá heldur. „Í dag var þetta allt öðruvísi. Með fullri virðingu fyrir Kostaríka sem lék frábærlega þá spila þeir ekki með neinu af bestu liðum Evrópu, ef við skoðum leikmannahópinn þeirra. „Við spiluðum klukkan 13:00 í brjáluðum hita. Leyndarmálið var hitinn. Við getum talað um hungur og margt annað en að mínu mati snérist þetta allt um að þeir þekktu aðstæður betur,“ sagði Motta sem vonast til þess að liðið nái að jafna sig fyrir úrslitaleik um sæti í 16 liða úrslitum við Úrúgvæ. „Við vitum að þetta verður ekki auðvelt gegn Úrúgvæ. Þeir eru með góðan hóp og aftur munum við leika klukkan 13:00. Kannski geta þeir ekki spilað af sama krafti og Kostaríka í hitanum.“
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Dagskráin í dag: Stjörnur framtíðarinnar og pílukast Sport Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Fleiri fréttir Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Kralj fer til Keflavíkur Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Sjá meira