Þvingunaraðgerðir hafa litla þýðingu fyrir Íslendinga Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 12. ágúst 2014 00:01 Íslendingar hafa tekið þátt í viðskiptaaðgerðum ESB og Bandaríkjanna gagnvart Rússum. Vísir/AFP
Íslendingar hafa tekið þátt í viðskiptaþvingunum Evrópusambandsins og Bandaríkjanna vegna ástandsins í Úkraínu á grundvelli EES-samningsins. Þvingunaraðgerðirnar varða viðskiptabann, farbann eða frystingu fjármuna. Slíkar takmarkanir varða EES-samninginn sem kveður á um frjálst flæði vöru, þjónustu, fjármagns og fólks innan EES. „Það sem hefur verið ákveðið til þessa hefur ekki haft neina praktíska þýðingu fyrir Íslendinga, mér vitanlega. Þetta hefur verið á svo takmörkuðum sviðum sem þessar þvingunaraðgerðir hafa verið ákveðnar,“ segir Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, og bætir við að það sé fyrst og fremst táknrænt að taka undir þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins. „Menn verða þó að hafa í huga að ekki er hægt að fara með viðskipti hingað til lands sem annars hefðu átt sér stað milli ESB-ríkja og Rússlands,“ segir Birgir.Birgir ármannssonHér á landi hafa þvingunaraðgerðirnar verið innleiddar með reglugerðum. Það var 21. mars sem Íslendingar tóku fyrst þátt í þvingunum Evrópusambandsins gegn rússneskum og úkraínskum einstaklingum sem tengjast aðgerðum Rússa á Krímskaga. Þá voru fjármunir nokkurra einstaklinga frystir og 18 einstaklingum, sem taldir voru ógna sjálfstæði Úkraínu, var meinað að ferðast til ESB-landa, auk þeirra landa sem tóku þátt í aðgerðunum með þeim. Fleiri ámóta reglugerðir fylgdu í kjölfarið á næstu vikum og mánuðum og fleiri eru í bígerð. Heldur var hert á í lok júní. Þá var tilkynnt um viðskiptabann á vörur frá Krím og Sevastopol. Bannið gildir þó ekki um vörur frá þessum stöðum ef þeim fylgir upprunavottorð frá úkraínskum stjórnvöldum. Í lok síðasta mánaðar var enn hert á. Þá var lagt bann við viðskiptum með skuldabréf rússneskra fjármálafyrirtækja, sett var útflutningsbann til Rússlands á hergögnum og vörum með tvíþætt notagildi til hernaðar, útflutningsbann á tæki fyrir olíuiðnaðinn til djúpsjávarkönnunar og framleiðslu. Þá er bann lagt við könnun á olíuvinnslumöguleikum á norðurskauti eða leirsteinaolíuframleiðslu í Rússlandi. Eins og komið hefur fram í fréttum hafa Rússar brugðist hart við þessum þvingunaraðgerðum og tilkynntu í síðustu viku að þeir hefðu ákveðið að setja á innflutningsbann gagnvart þeim þjóðum sem hafa staðið í þvingunaraðgerðum gegn landinu. Ísland var ekki á þeim lista.
Tengdar fréttir Samband forsetanna skyldi ekki vanmeta Því er hent fram að Rússar hafi gleymt Íslandi þegar bannlisti á Vesturlönd var dreginn upp. Bent er á að gott samband Ólafs Ragnars Grímssonar og Vladimírs Pútín gæti hafa skipt máli. Eins að Rússar "hafi not“ fyrir Ísland síðar. 9. ágúst 2014 07:00 Þvinganir Rússa breyta ekki stefnu Íslands gagnvart Úkraínu Framkvæmdastjóri LÍÚ segir innflutningsbann Rússa á fisk frá Vesturlöndum mikil tíðindi og alvarleg. Ekki liggur fyrir hvort bannið nær til innflutnings á íslenskum matvörum. 7. ágúst 2014 12:57 Mest lesið Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Hnífstunga á Austurvelli Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Fleiri fréttir Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Sjá meira
Samband forsetanna skyldi ekki vanmeta Því er hent fram að Rússar hafi gleymt Íslandi þegar bannlisti á Vesturlönd var dreginn upp. Bent er á að gott samband Ólafs Ragnars Grímssonar og Vladimírs Pútín gæti hafa skipt máli. Eins að Rússar "hafi not“ fyrir Ísland síðar. 9. ágúst 2014 07:00
Þvinganir Rússa breyta ekki stefnu Íslands gagnvart Úkraínu Framkvæmdastjóri LÍÚ segir innflutningsbann Rússa á fisk frá Vesturlöndum mikil tíðindi og alvarleg. Ekki liggur fyrir hvort bannið nær til innflutnings á íslenskum matvörum. 7. ágúst 2014 12:57