Þurfa ekki að hlýða biðskyldu Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. ágúst 2014 15:30 Hér má sjá þverakstur bíla yfir hjólastíginn. Vísir/Daníel „
Merkingarnar eiga sér ekki stoð í umferðarlögum, strangt til tekið, enda er ekkert til sem heitir hjólastígar í lögunum,“ segir Jóhanna Björg Hansen, bæjarverkfræðingur Mosfellsbæjar, um umdeildar vegmerkingar á hjólastíg einum í bæjarfélaginu. Á stígnum sem liggur um Háholt og Brautarholt eru merkingar sem margir gætu túlkað sem biðskyldu hjólreiðafólks þar sem svipaðar merkingar gera það á umferðargötum en í lögum er skýrt að vegfarendur um stíginn eiga forgang. Ökumenn sem ætla að aka yfir gangstétt út á akbraut eiga að bíða meðan vegfarendur fara fram hjá og hið sama á við um hjólafólk er fram kemur í 25. og 26. grein umferðarlaga. Jóhanna segir að merkingarnar hafi fyrst og fremst verið settar þarna til að vara hjólreiðamenn við bílum sem koma af bílastæðinu en þeir fara þvert yfir hjólastíginn á leið sinni út á götuna. Erfitt geti reynst fyrir hjólreiðamenn á miklum hraða að bregðast við bílum sem koma fyrir húshornið og að landslagsarkitektar hafi viljað setja eitthvað til að vara við hættunni af þverakstri bílanna. Stæling á biðskyldutíglunum hafi einfaldlega orðið fyrir valinu því sambærilegar viðvörunarmerkingar fyrir hjól eru ekki til staðar. „Hjólamenningin þróast einfaldlega hraðar en reglugerðirnar,“ segir Jóhanna og bætir við að hjólreiðafólki hafi fjölgað mikið á síðustu árum. „Hjólreiðamenn eru tiltölulega óvarðir fyrir tjóni sem getur hlotist af árekstri á miklum hraða og alvarleg hjólreiðaslys verða æ algengari. Kannski er veruleikinn jafnvel orðinn sá að við þurfum að líta til hraðatakmarkana á hjólreiðastígum,“ bætir Jóhanna við en undirstrikar að hjólreiðafólk sé ekki lagalega skylt til að fylgja merkingunum enda sé vegafarendum tryggður forgangur í umferðarlögum Keimlíkar merkingar voru fjarlægðar af stíg við Suðurströnd á Seltjarnarnesi í kjölfar óánægju vegfarenda og fréttaflutnings mbl.is í apríl síðastliðnum en samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur ekki verið formlega kvartað undan biðskyldutíglunum í Mosfellsbæ.Mikil bílaumferð er yfir hjólastíginn.Vísir/DaníelVísir/Daníel
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira