Verksmiðju kippt úr sambandi Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 14. ágúst 2014 07:00 Fyrirtækið hefði viljað vita fyrr af straumleysi sem lamar nú vinnsluna á Bíldudal. fréttablaðið/Egill aðalsteinsson „
Hér á Bíldudal ætluðum við að vera í fullri vinnslu núna en Landsnet tekur af okkur rafmagnið yfir daginn vegna þess að þeir eru að sinna viðhaldi á línu,“ segir Einar Sveinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslenska kalkþörungafélagsins, sem er ósáttur við vinnubrögð Landsnets. „Þetta er svona eins og að kaupmaðurinn skellti á þig þegar þú ætlaðir að fara að kaupa í matinn,“ bætir hann við. Hann fékk vitneskju um þetta fyrir rúmum tveimur vikum en rafmagnsskömmtunin tók gildi í gær og mun standa að minnsta kosti næstu níu daga. Þurrkarar verksmiðjunnar verði því ekki nýttir frá átta að morgni til sjö að kvöldi. Hann segir ekki hægt að meta þessar búsifjar til fjár. „Ætli þetta séu ekki um þrettán eða fjórtán hundruð tonn af framleiðslu,“ segir hann. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra átti í gær fund með forsvarsmönnum fyrirtækisins, en hún er á ferð um Vestfirði, og var rafmagnsskerðingin á meðal umræðuefna. Ráðherrann segist skilja að það skipti máli að menn tali saman í svona tilvikum. „Það er gott að menn láti vita af svona atvikum með fyrirvara ef það er hægt,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra. Að öðru leyti vísaði hún á Landsnet, en Fréttablaðið náði ekki tali af forstjóra Landsnets. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kveður samningur Landsnets og fyrirtækisins á um skerðanlegan flutning á raforku og samkvæmt honum er Landsneti heimilt að skerða flutning meðal annars vegna viðhalds á flutningskerfinu. Einar Sveinn segist vissulega fagna því að verið sé að bæta aðstöðuna fyrir rafmagnsflutningana og segist hafa skilning á því að svona verði að bregðast við þegar á þeim stendur en hann hefði þó óskað þess að haft hefði verið meira samráð við félagið. „Ef þetta hefði legið fyrir mánuðum fyrr þá hefðum við getað aðlagað okkur að þessu og gefið starfsfólkinu frí þennan tíma,“ segir hann. Vélar verksmiðjunnar á Bíldudal þurfa um þrjú og hálft megavatt en það er um tíu prósent af allri rafmagnsnotkun á sunnanverðum Vestfjörðum.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira