Vissi ekki af konunni í karlaklefanum Kjartan Atli Kjartansson skrifar 14. ágúst 2014 10:31 Merkingar á herbergi ætlað til bleiuskipta í Laugardalslaug vekur athygli.
Í karlaklefanum í Laugardalslaug er sérstakt herbergi ætlað fyrir feður sem þurfa að skipta á börnum sínum. Athygli vekur að herbergið er merkt með mynd af konu að skipta á barni. Á netinu er hægt að finna merki sem sýna karlmann sinna þessu verki og hafa feður sem heimsækja laugina óskað eftir því að þetta verði endurskoðað. Logi Sigurfinnsson, forstöðumaður Laugardalslaugar, ætlar að endurskoða pantanir á skiltum og merkingum fyrir laugina. „Í fyrsta lagi vissi ég ekki að það væri skilti sem sýndi konu utan á herberginu,“ segir hann og heldur áfram: „Við pöntum inn skilti að utan, þetta eru alþjóðleg skilti. En núna fer ég og tékka á þessu." Logi ætlar því að gera sitt til þess að fjarlæga konuna úr karlaklefanum. „Ef það er mynd af konu er alveg sjálfsagt að skipta því út. Þær eiga lítið heima þarna."Efast um að feður láti þetta stoppa sigIngólfur V. Gíslason, félagsfræðingur sem hefur fjallað mikið um jafnréttismál, segir að horfa þurfi á heildarmyndina í þessu máli. Þó að herbergið sé merkt með skilti af konu sé jákvætt að herbergið sé til staðar. „Fyrir nokkrum árum kostaði Jafnréttisráð athugun á sjoppum við hringveginn og þar kom í ljós að afar oft var bara aðstaða til að skipta á börnum á kvennaklósettinu,“ segir hann. Afar jákvætt sé að aðstaða til bleiuskipta sé að finna bæði í karla- og kvennaklefum. Ingólfur efast um að feður muni láta skiltið hindra sig og lítur á spaugilegu hliðar málsins. „Mér finnst eiginlega bara fyndið að menn skuli svo hafa notað þessa merkingu. Ég á líka ekki von á að pabbarnir láti það eitthvað hindra sig. Þannig að auðvitað er fínt að þeir lagi þetta en aðallega er jákvætt að sundlaugarnar hafi aðstöðuna báðum megin.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira