Innlent

Átján ára á 146 kílómetra hraða

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Anton
Átján ára ökumaður var í gær stöðvaður fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut og mælist bifreið hans á 146 kílómetra hraða. Hámarkshraði á Reykjanesbraut er 90 kílómetrar á klukkustund.

Samkvæmt lögreglunni á Suðurnesjum gekkst hann við broti sínu. Glæfraaksturinn mun þó kosta hann 130 þúsund krónur í sekt, eins mánaðar ökuleyfissviptingu og þrjá punkta í ökuferilsskrá.

Tveir aðrir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Annars á 139 kílómetra hraða og hinn á 131 kílómetra hraða. Þá var einn ökumaður handtekinn vegna gruns um fíkniefnaakstur og sýnatökur staðfestu neyslu hans á kannabis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×