40 grömm af grasi og allar fangageymslur fullar Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. ágúst 2014 10:34 Fjöldi fólks sækir Dalvík heim á Fiskideginum mikla.
Að sögn varðstjóra á Akureyri var „heill hellingur“ var að gera hjá lögreglunni á Dalvík í tengslum við Fiskidaginn Mikla sem fram fór í bænum um helgina. Þrátt fyrir að hafa ekki nákvæmar tölur um fjölda afbrota að svo stöddu gat lögreglan staðfest í samtali við Vísi að þó hafi ekki verið um nein stórslys að ræða þrátt fyrir að erill hafi verið töluverður. Dagbók lögreglunnar er full af færslum um afskipti af ölvuðum hátíðargestum og voru nokkrir sendir til „kælingar“ í fangageymslu bæjarins. „Ætli þið getið ekki sagt að allar fangageymslur hafi verið fullar á Dalvík, enda einungis tveir fangaklefar í bænum,“ bætti varðstjórinn kíminn við. Þrátt fyrir það voru allar stympingar smávægilegar, engar alvarlegar líkamsárásir áttu sér stað í bænum og enginn var lagður inn til frekari aðhlynningar. Engin kynferðisbrotamál hafa verið tilkynnt lögreglunni eftir Fiskidaginn. Þá var töluvert um of hraðan akstur til og frá Dalvík meðan á hátíðinni stóð. Þrír voru einnig stöðvaðir fyrir ölvunarakstur og tveir voru teknir undir áhrifum fíkniefna. Þrátt fyrir að um neysluskammta hafi verið að ræða í flestum þeim fíkniefnamálum sem komu upp á hátíðinni voru að minnsta kosti tveir stöðvaðir með stærri skammta. Annar var með 40 grömm af grasi á sér og ætlaði hann sér að selja góssið. Þá var hinn stöðvaður með 10 grömm af amfetamíni en ekki er vitað hvað hann ætlaði sér með svo stóran skammt. „Ef hann ætlaði sér ekki að selja efnin þá hefði hann svo sannarlega geta komist í mikið stuð,“ sagði varðstjórinn enda um töluvert magn að ræða.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira