Óvissustig áfram í gildi við Sólheimajökul Svavar Hávarðsson skrifar 6. ágúst 2014 00:01 Myndin sýnir glögglega hvar jökulsporðurinn rís þar sem hann skagar út í lónið. mynd/ágúst gunnar gylfason
Sporður Sólheimajökuls breytist mikið frá degi til dags. Óvissustigi almannavarna verður haldið óbreyttu þar til frekari niðurstöður rannsókna liggja fyrir. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa aðstæður við sporð Sólheimajökuls breyst hratt að undanförnu. Sporður jökulsins gengur nú fram í jökullón og að undanförnu hafa jakar brotnað framan af jökulsporðinum og fallið í lónið. Við það að jökullinn gengur fram í lónið lyftist sporður jökulsins og nú síðustu daga hefur fremsti hluti sporðsins lyfst um 1,5 metra. Vegna hættu á að stór jökulbrot falli fram í lónið, með hættu á flóðbylgju yfir flatlendi við lónið, eru í gildi takmarkanir á mannaferðum á svæðinu. Þær upplýsingar fengust hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra að óvissustigi yrði viðhaldið næstu daga, en jöklasérfræðingar verða í dag á svæðinu við rannsóknir. Barði Theodórsson, hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum, segir alla starfsmenn fyrirtækisins sem hafa komið að jöklinum undanfarna viku sammála um að jökullinn breyti sér gríðarlega hratt. Ferðafólki er haldið utan þess svæðis sem skilgreint hefur verið sem hættusvæði, en ferðamenn eru leiddir að jöklinum eftir sem áður. Mest hætta er talin vera af umferð ferðamanna á eigin vegum, en björgunarsveitarfólk stendur vaktina og leiðbeinir þeim sem fara um svæðið.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira