Ný brú á Múlakvísl tekin í notkun Atli Ísleifsson skrifar 6. ágúst 2014 20:13 Brúin yfir Múlakvísl eyðilagðist í miklu hlaupi þann 9. júlí 2011. Mynd/Vegagerðin/G. Pétur Matthíasson
160 metra löng brú yfir Múlakvísl var formlega tekin í notkun í dag þegar Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra klippti á borða með aðstoð Hreins Haraldssonar vegamálastjóra. Í fréttatilkynningu frá Vegagerðinni segir að hlaup hafi orðið í Múlakvísl þann 9. júlí 2011 og eyðilagði þar með 130 metra langa brú sem byggð var árið 1990 og rauf þar með Hringveginn. „Samdægurs var hafist handa við undirbúning að smíði bráðbrigðabrúar en Vegagerðin á ávallt til reiðu efni í slíkar brýr. Á sjö dögum var byggð 156 m löng einbreið bráðabrigðabrú. Opnað var fyrir umferð á hádegi laugardaginn 16. júlí. Nýja brúin sem nú er tekin í notkun er 162 metra löng eftirspennt bitabrú í sex höfum og 10 metrar að breidd. Nýr vegur er um 2,2 kílómetrar að lengd og er breidd hans átta metrar. „Brúargólfið á nýju brúnni er 2 m hærra en var á eldri brú og lágpunktar eru hafðir í veginum sitthvoru megin brúar til þess að flóð af þeirri stærðargráðu sem varð í júlí 2011, taki ekki af brúna en rjúfi þess í stað veginn. Í austanverðum farveginum ofan brúar voru byggðir um 5,6 km langir varnargarðar upp með ánni, þar af er 2,5 km ógrjótvarinn bakgarður með 11 grjótvörðum leiðigörðum. Tilgangur þessara garða er að beina ánni undir brúna og varna miklu jarðvegsrofi. Auk þessa eru 2 grjótvarðir varnargarðar ofar til að verjast rofi á bakkanum sem er þar allt að 10 m hár og er eingöngu úr vikri frá Kötlu. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri þakkaði sérstaklega starfsmönnum Vegagerðarinnar sem komu að því að smíða bráðabrigðabrú á aðeins 7 dögum þegar mikið lá við. Hann þakkaði einnig verktökum Eykt og Þjótanda og undirverktökum þeirra og öllum sem komið hafa að smíði nýju brúarinnar. Þeir hafa unnið mjög gott verk, sagði Hreinn, og þar að auki mánuði á undan áætlun. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra að sama skapi þakkaði Vegagerðarfólki og vegamálastjóra fyrir hið ótrúlega afrek að smíða brú á 7 dögum, það bæri að þakka. Það er merki um það hvernig staðið er að hlutunum hjá Vegagerðinni, sagði Hanna Birna, og vitnaði til vegamálstjóra sem hafi lýst því þannig að Vegagerðin ætti alltaf efni á lager í svona brú og menn hafi gengið til lagers og hafist handa. Hún þakkaði einnig verktökum og öðrum þeim sem komið hafa að gerð nýju brúarinnar og óskaði heimamönnum til hamingju með mannvirkið. Sagði það nokkuð öðruvísi að opna mannvirki úti á landi en í Reykjavík þar sem öllu jafna hefðu ný mannvirki svo mikil áhrif á samfélagið og fólk úti á landi. Þetta þætti henni skemmtilegt verk og nú þegar mikið væri spurt um dagbókarfærslur hennar þá vildi hún óska þess að borðaklippingar væru fastur liður í dagbókinni,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Innlent Ozzy Osbourne allur Erlent Hótað og ógnað eftir að hafa aðstoðað lögreglu Innlent Alvarlega slösuð bankakona lagði VÍS eftir langa og stranga baráttu Innlent Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Erlent Hefði sagt nei: Sumarfrí bæjarfulltrúa opnaði fyrir endurskipulag á Nónhæð Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Erlent Reyndu að koma í veg fyrir að hún settist upp í hjá afrískum bílstjóra Innlent Fleiri fréttir Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Rán og frelsissvipting í Árbæ Mótmælandi skvetti málningu á ljósmyndara Morgunblaðsins Brottfararstöð dómsmálaráðherra komin í samráðsgátt Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Reyndu að koma í veg fyrir að hún settist upp í hjá afrískum bílstjóra Tveir af þremur ánægðir með beitingu „kjarnorkuákvæðisins“ Alvarlega slösuð bankakona lagði VÍS eftir langa og stranga baráttu Lærði skriðsund á YouTube og syndir Ermarsund á morgun Sjálfsagt að taka málið fyrir: „Leysist ekkert sjálfkrafa við að ganga inn í Evrópusambandið“ Lögreglan hugsi yfir Skildi Íslands: Eitt lögbrot verði ekki réttlætt með öðru Eldur í verslunarhúsnæði á Laugavegi Play tekur dýfu í skugga afkomuviðvörunar og Njáll Trausti vill funda Hótað og ógnað eftir að hafa aðstoðað lögreglu Laugavegurinn að „deyja úr velgengni“ Loftgæði mun betri á höfuðborgarsvæðinu Njáll Trausti vill fund hið fyrsta í atvinnuveganefnd Hefði sagt nei: Sumarfrí bæjarfulltrúa opnaði fyrir endurskipulag á Nónhæð Með vesen í miðborginni og á bráðamóttöku og síðar handtekinn vegna þjófnaðar Virknin bundin við einn gíg: Gasmengunar gæti orðið vart á Suðurlandi Ekki hægt að draga ályktanir um hver varð manninum „líklegast“ að bana Hvalreki í Vogum Gosmóðan gæti setið sem fastast fram á fimmtudag: „Menn verða að taka þetta alvarlega“ Sjá meira