Úr rannsóknarskipi í bátsflak í eyðifirði Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 21. ágúst 2014 14:00 Guðmundur Bjarnason til hægri á myndinni.
Þegar Guðmundur Bjarnason, skipstjóri á hafrannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni, kom úr makrílleiðangri lagði hann fljótlega í annan sjóleiðangur af allt öðrum toga. Ferðinni var heitið að Krosseyri í Arnarfirði til að kanna flak bátsins Kára BA sem legið hefur þar í árafjöld í fjörunni. Þangað liggur enginn vegur svo ekki er hægt að fara nema sjóleiðina.Báturinn, sem smíðaður var árið 1939, reyndist hins vegar alveg ónýtur en nú hyggjast Guðmundur og félagar hans í Arnfirðingafélaginu ná vélinni úr honum og koma henni til Bíldudals þar sem hún verður höfð til sýnis. „Við ætlum að freista þess að fara í annan leiðangur helgina 6. til 7. september og ná vélinni,“ segir Guðmundur. „Við eigum reyndar eftir að tala við yfirvöld en okkur þætti best fara á því að hafa vélina fyrir framan smiðjuna á Bíldudal.“ Skipstjóranum virðist renna blóðið til skyldunnar. „Mér finnst eins og maður verði að borga eitthvað til baka en ég átti svo góða æsku á Bíldudal,“ segir hann.Vélin er af gerðinni Unimunktel og talið er að hún sé sú eina sinnar tegundar hér á landi. Kári var lengst af í eigu Jóns heitins Jóhannessonar sem er mörgum Bílddælingum eftirminnilegur meðal annars fyrir þær sakir að hann talaði við bátinn og gat látið vélarræfilinn heyra það ef hik var á honum. Árið 1990 keypti Kristján Pálsson bátinn og setti hann í fjöruna á Krosseyri. Krosseyri er við Geirþjófsfjörð í Arnarfirði en eins og sögufróðir vita ól Gísli Súrsson þar manninn síðari hluta ævi sinnar þar til hann hoppaði helsærður fram af klettinum Einhamri í botni fjarðarins.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira