Metfjöldi var á Menningarnótt Kjartan Atli Kjartansson skrifar 23. ágúst 2014 23:55
Metfjöldi var á Menningarnótt í ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Höfuðborgarstofu. Þar kemur fram að umferð hafi gengið greiðlega eftir að dagskrá lauk klukkan 23:15. Talið er að vel yfir 100 þúsund hátíðargestir hafi tekið þátt í Menningarnótt. Í fréttatilkynningunni segir einnig að hátt í 600 viðburðir hafi verið á dagskrá frá morgni til kvölds en dagskráin endaði, eins og venja er, með flugeldasýningu á hafnarbakkanum. Hér fyrir ofan má sjá myndband af flugeldasýningunni sem Sindri Reyr Einarsson, tökumaður Stöðvar 2, tók. Fréttatilkynningin lítur svo út í heild sinni:Metfjöldi skemmti sér saman á Menningarnótt sem fór fram í dag í blíðskaparveðri en formlegri dagskrá lauk núna klukkan 23:15. Hátíðin tókst mjög vel og er það mat skipuleggjenda og lögreglu að sjaldan ef nokkurn tímann hafi verið saman kominn jafn mikill fjöldi í miðborg Reykjavíkur. Talið er að vel yfir 100.000 hátíðargestir hafi tekið þátt í Menningarnótt. Hátt í 600 viðburðir voru á dagskrá frá morgni til kvölds og lokaviðburðurinn var eins og alltaf flugeldasýningin á hafnarbakkanum. Við skipulagningu var reynt að létta álagi á þeim svæðum þar sem mestur mannfjöldi safnast saman venjulega og dreifðist fólk betur um hátíðarsvæðið nú en fyrri ár. Áhersla var lögð á dagskrá á Hverfisgötu og mikið var um að vera í Hljómskálagarðinum auk þess sem fjöldi minni viðburða var um allt hátíðarsvæðið. Umferð gekk mjög vel að sögn lögreglu sem þakkar það stærra lokunarsvæði. Stækkunin hafði það í för með sér að akstur var að mestu í kringum hátíðarsvæðið í stað þess að bílar væru að keyra inn á svæðið og koma sér út aftur líkt og fyrri ár. Strætó bauð upp á ókeypis ferðir á Menningarnótt líkt og fyrri ár og virðast fleiri hafa nýtt sér það heldur en í fyrra. Mjög góð nýting var á nýrri strætóleið sem ferjaði fólk frá stórum bílastæðum við Kirkjusand og Borgartún að Hallgrímskirkju og til baka. „Ég er einlæglega þakklátur öllum þeim sem komu í miðborgina í dag og í kvöld. Allir voru sér og sínum til sóma og gleði og hamingja sveif yfir öllu.” sagði Einar Bárðarson forstöðumaður Höfuðborgastofu í kvöl„Lögregla, björgunarsveitir og allir sem komu að skipulagi hátíðarinnar stóðu sig frábærlega. Ráðleggingaröryggisráðsins og þær breytingar sem gerðar voru í samræmi við þær í ár tókust frábærlega. Listafólki öllu þakka ég líka fyrir hönd stjórnar menningarnætur innilega fyrir litríkt framlag af öllum stærðum og gerðum. Í dag og í kvöld skemmtum við okkur eins og við værum öll ein fjölskylda á risastóru ættarmóti. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að vera með.” Stjórn Menningarnætur þakkar borgarbúum og gestum Menningarnætur fyrir samveruna.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira