Fasteignirnar voru ekki auglýstar Hjörtur Hjartarson skrifar 4. október 2014 19:30 Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins
Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins gagnrýnir að stuðst hafi verið við fimmtán mánaða gamalt verðmat þegar húsin við Laugaveg 4 og 6 voru seld í sumar. Húsin voru ekki auglýst til sölu heldur var tveimur fasteignasölum falið að afla tilboða. Borgarfulltrúinn telur víst að hærra verð hefði fengist fyrir húsin ef betur hefði verið staðið að sölunni. Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 28.ágúst að selja húseignirnar við Laugaveg 4 og 6 og Skólavörðustíg 1a fyrir 365 milljónir króna til BAB Capital. Húsin keypti borgin fyrir sex árum á 580 milljónir króna. Heildarkostnaður borgarinnar eftir endurbætur er um 750 milljónir. Heildartap borgarinnar miðað við áðurnefnt söluverð er því um 400 milljónir. Borgarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðis lögðust gegn sölunni, þeim þótti söluverðið of lágt og bíða ætti með söluna.Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins lét ekki þar við sitja og óskaði eftir upplýsingum um söluferlið allt. „Og þá kom í ljós samkvæmt svari sem barst borgarráði í síðustu viku að eignirnar voru ekki auglýstar hjá þeim fasteignasölum sem umboð til að selja þær. Borgarstjóri hefur komið í pontu og sagt að þetta væri ásættanlegt verð miðað við verðmat. Hann hefur líka sagt að markaðurinn ráði. Gott og vel, ef við ætlum að láta markaðinn ráð verðum við að auglýsa,“ segir Sveinbjörg Birna.Sveinbjörg segir að ekki fyrr en eftir að salan var gengin í gegn að í ljós hafi komið að verðmatið var fimmtán mánaða gamalt.„Heldurðu að það hefði breytt einhverju ef það verið lagt fram nýrra verðmat?“„Já, ég tel að það hefði breytt töluvert miklu. Eins og ég hef sagt áður þá hefur orðið mikil hækkun á fasteignaverði í miðbænum. Mér finnst ekkert óvarlegt að skjóta á að borgin verði af um 100-150 milljónum króna vegna þessa.“ Sveinbjörg viðurkennir að vissulega sé hið endanlega verðmat fólgið í því hvað markaðurinn er tilbúinn til að borga. „Jú, þegar markaðurinn er gegnsær, þegar að fólk veit að eignin er til sölu. Ég spurði sérstaklega var ekki gert gagntilboð á þessa aðila? Þá var því svarað að það væri lenska að gera slíkt af hálfu Reykjavíkurborgar,“ segir Sveinbjörg Birna.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Fleiri fréttir Fella niður bátsferðir en fjölga flugferðum Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Sjá meira