Beðið í hálfan sólahring eftir að komast í Herjólf ingvar haraldsson skrifar 4. ágúst 2014 14:39 Þeir sem lengst hafa beðið hafa verið í röð frá klukkan tvö í nótt. vísir/óskar
Á hverju ári fer talsverður fjöldi á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum án þess að eiga bókaða heimferð. Löng röð hefur myndast á Básaskersbryggju í Vestmanneyjum af fólki sem ekki á miða í Herjólf eða vill komast fyrr heim en það átti bókaða ferð. Þegar ljósmyndari Vísis náði tali af miðalausum þjóðhátíðargestum höfðu þeir sem lengst höfðu beðið verið í röð frá klukkan tvö í nótt eða í hálfan sólarhring. Gunnlaugur Grettisson, starfsmaður Eimskipa í Vestmanneyjum, segir að vel gangi að ferja fólk úr eyjunni. Herjólfur fer nú sína sjöttu ferð af tíu í dag. „Þetta gengur bara vel, það er fullt í allar ferðir og allt á áætlun.“ Gunnlaugur bætir við að það sé „mikið að fólki að reyna að komast fyrr í skipið. Margir þeirra eiga bókað á morgun og miðvikudaginn.“ Gunnlaugur biðlar til fólks að vera rólegt í sínum tjöldum og vistarverum og bíði eftir sinni ferð því kalt geti verið að bíða langtímum saman við hafnarbakkann. „Það er alltaf einhverjum hleypt inn en við biðjum fólk um að bíða bara rólegt eftir sinni ferð“ ítrekar Gunnlaugur. Erlent fólk á vegum vegum kristilega ungliðastarfsins YMCA eru á Básaskersbryggju með heitt kaffi handa fólkinu sem bíður eftir fari úr Vestmanneyjum. Hamborgarasöluvagn er staddur við Herjólfsafgreiðslu þannig að fólk getur keypt sér eitthvað að borða.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira