Fallinna hermanna í fyrri heimsstyrjöldinni minnst Heimir Már Pétursson skrifar 4. ágúst 2014 19:48
Þess var minnst í Bretlandi og Belgíu í dag að um þessar mundir eru eitt hundrað ár frá því fyrri heimsstyrjöldin hófst. Forsætisráðherra Bretlands segir styrjöldina hafa haft víðtæk áhrif og breytt bresku samfélagi. Hertogahjónin Vilhjálmur og Katrín af Cambridge heiðruðu þá sem féllu í fyrri heimsstyrjöldinni í belgísku borginni Liege í Belgíu í dag, ásamt Franocis Holland Frakklandsforseta, Baldvini Belgíukonungi, Matthildi drottningu og fleiri fyrirmennum í dag. En fyrsta orrusta stríðsins fór einmitt fram við borgina þennan dag fyrir einni öld. Rúmlega 17 milljónir hermanna og óbreyttra borgara féllu í stríðinu. Harry Bretaprins var viðstaddur athöfn í Folkestone á suður Englandi en þar fóru níu milljónir hermanna um á leið sinni til vígstöðvanna í Evrópu. Harry vígði minningarboga um þá sem féllu og lagði blómsveig að öðru minnismerki. Karl faðir hans var hins vegar viðstaddur minningarathöfn í Glasgow í Skotlandi þar sem minnst var framlags hundruð þúsunda íbúa samveldislandanna sem börðust með Bretum í stríðinu. Þá hafa listamenn komið fyrir hafi af rauðum keramik valmúablómum við Tower of London sem þeir kalla „Blóð rann yfir land og haf“ og mun blómunum fjölga fram til 11. desember en þann dag árið 1918 lauk fyrri heimsstyrjöldinni. David Cameron forsætisráðherra Bretlands sagði í Skotlandi í dag að fyrri heimsstyrjöldin hefði haft gríðarleg áhrif á hverja einustu fjölskyldu í öllum þjóðfélagsstigum Bretlands og mótað tilveru þeirra eftir það. „Umfang slátrunarinnar var gífurlegt. Fyrir þær sakir væri mikilvægt að minnast þessara atburða en einnig allra þeirra ungu karla og kvenna sem trúðu því að þau væru að verja tilverurétt smáríkis, Belgíu, og koma í veg fyrir að eitt ríki Evrópu gnæfði yfir önnur. Þar hafi verið grundvallar hugsun á ferð sem vert er að minnast enn í dag,“ sagði Cameron.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira