Kvartaði undan málþófi stjórnarandstöðunnar Aðalsteinn Kjartansson skrifar 16. desember 2014 14:09 Ásmundur var ósáttur við kaldar kveðjur Sigríðar Ingibjargar. Vísir/Vilhelm
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kvartaði undan málþófi í morgun og yfir orðum Oddnýjar G. Harðardóttur og Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þingmanna Samfylkingarinnar, frá því í gær. Sagðist hann sjálfur hafa kvartað við samflokksmenn sína á síðasta kjörtímabili vegna málþófs sem hann telur til skammar fyrir þingið. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, svaraði Ásmundi og benti á að þingstörfin gengu vel. Gert er ráð fyrir þinglokum í dag að lokinni þriðju umræðu um fjárlög næsta árs.Steingrímur benti á að þinglok væru óvenju snemma en þau eru áætluð í dag.Vísir/Daníel„Það kemur úr hörðustu átt að sjálfstæðismaður, sem vissulega segist hafa gagnrýnt sína flokksfélaga á síðasta kjörtímabili, skuli tala hér á þingi um málþóf þegar við erum í þann veginn að ljúka störfum 16. desember, óvenju snemma. Hér hafa þingstörf gengið óvenju greiðlega fyrir sig, „ sagði hann og bætti við: „Það er eins fráleitt og nokkuð getur verið að tala um slíkt.“ Ásmundur sagði ekkert til í því sem Oddný sagði á Facebook-síðu sinni í gær að stjórnarþingmenn á Suðurnesjum væru að flytja störf í burtu af svæðinu. „Stjórnarþingmennirnir af Suðurnesjum styðja hins vegar að færa 700 mkr frá Isavia sem nýta átti til framkvæmda við Leifsstöð og með því fara mörg störf frá okkur Suðurnesjamönnum,“ sagði hún á Facebook-síðu sinni. Þessu mótmælti Ásmundur harðlega. „Þetta eru ósannindi. Það eru engin störf að fara í burtu út af því á Suðurnesjum. Það er mikil uppbygging fram undan,“ sagði hann. Ásmundur gerði einnig gagnrýni Sigríðar Ingibjargar á forgangsröðun Sjálfstæðisflokksins í menningarmálum að umræðuefni en hún setti hana í samhengi við umræðu um kirkjuheimsóknir grunnskólabarna.Sigríður Ingibjörg sakaði í gær þingmenn Sjálfstæðisflokks um „djöfulsins teboð“.Vísir/GVASigríður Ingibjörg sakaði flokksmenn Sjálfstæðisflokksins um „djöfulsins teboðshræsni“ á Facebook-síðu sinni og vísaði þar til Teboðsframboðanna hægrisinnuðu í Bandaríkjunum. „Ég, sem hef rætt hér um góð gildi lífsins og kristna trú sem er mér hugleikin, fæ kalda kveðju frá góðum samstarfsmanni í velferðarnefnd, háttvirtur þingmaður Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, sem kallar mig teboðshræsnara fyrir að tala um góð gildi lífsins,“ sagði Ásmundur. Spurði hann hvort þetta væri andinn sem þingmenn vildu að ríkti í þinghúsinu. „Er þetta samstarfsandinn sem við viljum að ríki í þessu húsi? Ég trúi því ekki.“
Mest lesið Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Innlent „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Innlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Fleiri fréttir Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Sjá meira