Að óbreyttu fækkað um allt að 100 starfsmenn á LSH Svavar Hávarðsson skrifar 20. nóvember 2014 07:00 Forsvarsmenn LSH undirbúa sig undir enn einn niðurskurðinn innan spítalans. Fréttablaðið/GVA
Fáist ekki frekara fjármagn til reksturs Landspítalans en honum er ætlað í fjárlögum 2015 verður gripið til hagræðingaraðgerða sem þegar eru í undirbúningi innan spítalans. Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarkostnaður spítalans verði lækkaður um 1,5 milljarða króna sem þýðir að starfsmönnum verður fækkað um allt að eitt hundrað. Þar af eru átta af hverjum tíu kvennastörf. Þetta kemur fram í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðisráðherra, við fyrirspurn Björns Vals Gíslasonar, varaþingmanns Vintri grænna, sem spurði um hvaða áhrif er áætlað að frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2015 hafi á þróun starfa á undirstofnunum ráðuneytisins. Svar ráðherra var unnið samkvæmt upplýsingum frá LSH vegna fyrirspurnarinnar og var birt á þriðjudag. Í svarinu segir að ef fjárlög standa óbreytt og nauðsynlegt verði að draga saman rekstrarkostnað þá felist í því „ýmsar breytingar á verkefnum innan spítalans sem nauðsynlegt verður að grípa til [..] en útfærslu hagræðingaraðgerða er ekki að fullu lokið. Miðað við þá vinnu sem nú er í gangi má gera ráð fyrir fækkun stöðugilda á bilinu 70–100 sem gæti skipst eftir kynjum miðað við núverandi kynjahlutföll meðal starfsmanna.“ Jón Hilmar Friðriksson, staðgengill forstjóra LSH, vill ítreka að nákvæm útfærsla hagræðingaraðgerða, komi til þeirra, liggi ekki fyrir. Hann segir að nú þegar sé búið að breyta starfseminni svo mikið í niðurskurði síðastliðinna ára að lengra verði vart gengið. Eins að niðurskurði sem þessum verði ekki náð án þess að fækka starfsfólki, til dæmis með starfsmannaveltu, enda stærsti hluti útgjalda spítalans laun starfsmanna. Því þýði frekari hagræðing fækkun verkefna; færri aðgerðir sem þýðir lengri biðlistar.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Sjá meira