Dan­mörk vann gullið og Þjóð­verjar Al­freðs fá silfur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Danski markmaðurinn Kevin Möller var valinn maður leiksins.
Danski markmaðurinn Kevin Möller var valinn maður leiksins. Sanjin Strukic/Pixsell/MB Media/Getty Images

Danmörk er Evrópumeistari í handbolta eftir verðskuldaðan sjö marka, 34-27, sigur gegn Þýskalandi í úrslitaleiknum. Danir skráðu sig þar með á spjöld sögunnar sem aðeins annað liðið á eftir Frakklandi til ríkja sem heims-, Ólympíu- og Evrópumeistari.

Yfirburðir danska liðsins í alþjóða handboltanum voru greinilegir í úrslitaleiknum, sem minnti mjög á undanúrslitaleikinn gegn Íslandi. Þýskaland gerði alls ekki mörg mistök, en nógu mörg mistök til að Danmörk gæti siglt fram úr.

Vandræði þegar varnartröllið fékk rautt 

Þjóðverjar tóku forystuna í upphafi en lentu í vandræðum þegar varnartröllið Tom Kiesler fékk rautt spjald um miðjan fyrri hálfleik. Þá lentu Þjóðverjar tveimur mörkum á eftir Dönum og þurftu að elta þá það sem eftir lifði leiks.

Simon Pytlick var sjóðheitur í fyrri hálfleik og Thomas Arnoldsen lét vel til sín taka á báðum endum vallarins fyrir Danmörku, en það hjálpaði Þjóðverjum mikið að Mathias Gidsel var í vandræðum.

Wolff varði vel en sóknin missti boltann of oft 

Andreas Wolff varði líka vel, sérstaklega frá Gidsel, og hélt Þýskalandi inni í leiknum. En Þjóðverjar töpuðu boltanum einfaldlega of oft til að eiga séns á að vinna Danmörku.

Andreas Wolff hélt Þjóðverjum á lífi en hinumegin misstu liðsfélagar hans boltann oft og Kevin Möller var líka í banastuði. Sina Schuldt/dpa (Photo by Sina Schuldt/picture alliance via Getty Images

Kevin Möller spilaði mest allan leikinn í danska markinu, varði virkilega vel og var valinn maður leiksins, en Emil Nielsen kom svo inn á og lokaði leiknum. Nielsen varði vítakast á mjög mikilvægum tímapunkti og Danir nýttu tækifærið til að stækka forystuna.

Á endanum misstu Þjóðverjar hausinn, fengu annað rautt spjald og reyndu ekki einu sinni að minnka sjö marka muninn í lokasókn leiksins.

Löng bið eftir Evrópugulli 

Danmörk varð þar með Evrópumeistari í fyrsta sinn síðan 2012, eftir að hafa endað í öðru og þriðja sæti á síðustu tveimur mótum. 

Þýskaland þarf hins vegar að láta sér silfrið nægja, alveg eins og eftir úrslitaleik Ólympíuleikanna gegn Danmörku árið 2024. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira