Harma aðgerðaleysi BYKO Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. október 2014 15:29 BYKO og ELKO selja SodaStream vörur í verslunum sínum. Vísir/Pjetur
Hreyfingin BDS – Ísland – Sniðganga fyrir Palestínu harmar aðgerðarleysi stjórnar BYKO vegna hvatningar sem hreyfingin sendi BYKO og ELKO í byrjun september um að hætta að selja SodaStream vörur. Með því gætu fyrirtækin sýnt ábyrga afstöðu og horfið frá stuðningi við lögbrot stjórnvalda í Ísrael, en með því að selja SodaStream vörur er verið að hagnast á aðskilnaðarstefnu og landráni Ísraelsmanna, að því er segir í tilkynningu BDS. Engin viðbrögð bárust frá fyrirtækjunum svo BDS hóf undirskriftasöfnun auk þess sem fyrirtækjunum bárust hundruðir tölvupósta. Síðastliðinn miðvikudag barst svo yfirlýsing frá stjórn BYKO í fjölmiðlum þar sem kom fram að „stjórn Byko gæti ekki tekið afstöðu til jafn eldfims pólitísks deilumáls þar sem slíkt myndi skaða viðskiptahagsmuni Bykos“. Það kom síðan í ljós í gær að stjórn BYKO hafði ekki sent út yfirlýsinguna og hefur því ekki brugðist á neinn hátt við hvatningu BDS. Í tilkynningu BDS vegna þessa segir: „Hreyfingin BDS Ísland harmar aðgerðarleysi stjórnar BYKO og skorar hér með enn og aftur á stjórnendur fyrirtækisins að bregðast við áskorun hreyfingarinnar og þeirra Íslendinga sem hafa hvatt fyrirtækið til þess að láta af sölu á SodaStream. Með því að versla SodaStream er verið að styðja landrán og aðskilnaðarstefnu Ísraelsmanna – með því að selja SodaStream er verið að hagnast á landráni og aðskilnaðarstefnu Ísraelsmanna.“
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira