Innlent

Sambýlið mun rísa við Austurbrún

Atli Ísleifsson skrifar
Um er að ræða byggingu með sex litlum einstaklingsíbúðum fyrir hreyfihamlaða einstaklinga.
Um er að ræða byggingu með sex litlum einstaklingsíbúðum fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Vísir/Valli
Borgarráð hefur samþykkt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir að sambýli fyrir hreyfihamlaða einstaklinga rísi á lóðinni við Austurbrún 6.

Um er að ræða byggingu með sex litlum einstaklingsíbúðum fyrir hreyfihamlaða einstaklinga.

Áður höfðu 49 íbúar í Austurbrún og Vesturbrún mótmælt því að byggt yrði á umræddum stað. Bendu þeir meðal annars á að hverfið væri skilgreint sem fullbyggt og þeir hafi mátt vænta þess að ekki yrðu reist fleiri hús nærri þeirra. Heildarmynd svæðisins muni skaðast, útsýni skerðast og verðmæti eigna þeirra minnka. Segjast þeir munu leita réttar síns ef af framkvæmdinni verður.

Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að deiliskipulagið hafi verið auglýst frá 5. maí til 16. júní síðastliðinn, en um er að ræða sex hundruð fermetra byggingu á lóðinni við Austurbrún 6 en þar er fyrir þrettán hæða bygging með 71 íbúð.

„Athugasemdir bárust frá íbúum í nærliggjandi húsum, þó ekki frá íbúum fjölbýlishússins að Austurbrún 6.

Megininntak athugasemdanna er að tillagan sé brot á aðalskipulagi og að svæðið sé fullbyggt og fastmótað, bílastæðavandamál muni aukast og verið sé að þrengja að byggð sem fyrir er, ganga á opið rými og græn svæði. Þá er því haldið fram að fyrirhugaðar byggingar muni rýra verðgildi eigna á svæðinu og takmarka útsýni.

Í svörum skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar við athugasemdunum kemur fram að tillagan sé í fullu samræmi við gildandi aðalskipulag en í því er tilgreint að yfir 90% allra nýrra íbúða í Reykjavík til ársins 2030 muni rísa innan núverandi þéttbýlismarka ef áætlanir aðalskipulagsins ganga eftir.

Ekki er fallist á að sambýli fyrir fatlað fólk sé stofnun heldur er það skilgreint sem íbúðarhúsnæði.

Skipulagsfulltrúi hafnar því einnig að heildarmynd hverfisins muni skaðast með breytingunni enda sé nýbyggingin fyrirhuguð í jaðri byggðar á illa nýttum grasflötum.

Þá er ekki fallist á það sjónarmið að 5.5 metra há bygging skerði útsýni enda sé hún fyrirhuguð í 1 – 1.5 metra lægra landi en þau hús sem næst standa.

Þá er tilgreint í svörum skipulagsfulltrúa að heildarfjöldi bílastæða á lóðinni muni  aukast úr 44 í 49 en bætt er við sjö bílastæðum vegna sambýlisins. Þá verði töluvert eftir af lóðinni til að njóta útiveru.

Ekki liggur fyrir endanleg tillaga að byggingunni,“ segir í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.


Tengdar fréttir

Nágrannar hóta málsókn vegna sambýlis í Laugarásnum

Skipulagsráð samþykkti í gær stækkun á lóð Austurbrúnar 6 í Laugárásnum svo Félagsþjónusta Reykjavíkur geti byggt þar sambýli sem hýsa á fjölfatlað fólk með umönnunarþörf. Ekki var tekið tillit til harðra mótmæla nærri fimmtíu nágranna.

Sorglegt segir borgarstjóri um viðhorf nágranna til sambýlis í Austurbrún

Borgarstjórinn í Reykjavík segir sorglegt ef íbúar í Vesturbrún og Austurbrún telji að verðmæti húsa þeirra lækki ef byggt verður hús fyrir fjölfatlaða á svæðinu. Einn íbúinn, Jóhann G. Jóhannsson, segir hins vegar að það sé bygging á þessum stað og skerðin á grænum svæðum sem mótmælt sé enn ekki starfsemin í húsinu.

Opið bréf til borgarstjóra Reykjavíkur

Á lægvísan og óheiðarlegan hátt fullyrðir þú að við sem mótmælt höfum fyrirhugaðri byggingu á lóð Austurbrúnar 6, séum á móti fötluðu fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×