Sambýlið mun rísa við Austurbrún Atli Ísleifsson skrifar 3. október 2014 16:33 Um er að ræða byggingu með sex litlum einstaklingsíbúðum fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Vísir/Valli
Borgarráð hefur samþykkt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir að sambýli fyrir hreyfihamlaða einstaklinga rísi á lóðinni við Austurbrún 6. Um er að ræða byggingu með sex litlum einstaklingsíbúðum fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Áður höfðu 49 íbúar í Austurbrún og Vesturbrún mótmælt því að byggt yrði á umræddum stað. Bendu þeir meðal annars á að hverfið væri skilgreint sem fullbyggt og þeir hafi mátt vænta þess að ekki yrðu reist fleiri hús nærri þeirra. Heildarmynd svæðisins muni skaðast, útsýni skerðast og verðmæti eigna þeirra minnka. Segjast þeir munu leita réttar síns ef af framkvæmdinni verður. Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að deiliskipulagið hafi verið auglýst frá 5. maí til 16. júní síðastliðinn, en um er að ræða sex hundruð fermetra byggingu á lóðinni við Austurbrún 6 en þar er fyrir þrettán hæða bygging með 71 íbúð. „Athugasemdir bárust frá íbúum í nærliggjandi húsum, þó ekki frá íbúum fjölbýlishússins að Austurbrún 6. Megininntak athugasemdanna er að tillagan sé brot á aðalskipulagi og að svæðið sé fullbyggt og fastmótað, bílastæðavandamál muni aukast og verið sé að þrengja að byggð sem fyrir er, ganga á opið rými og græn svæði. Þá er því haldið fram að fyrirhugaðar byggingar muni rýra verðgildi eigna á svæðinu og takmarka útsýni. Í svörum skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar við athugasemdunum kemur fram að tillagan sé í fullu samræmi við gildandi aðalskipulag en í því er tilgreint að yfir 90% allra nýrra íbúða í Reykjavík til ársins 2030 muni rísa innan núverandi þéttbýlismarka ef áætlanir aðalskipulagsins ganga eftir. Ekki er fallist á að sambýli fyrir fatlað fólk sé stofnun heldur er það skilgreint sem íbúðarhúsnæði. Skipulagsfulltrúi hafnar því einnig að heildarmynd hverfisins muni skaðast með breytingunni enda sé nýbyggingin fyrirhuguð í jaðri byggðar á illa nýttum grasflötum. Þá er ekki fallist á það sjónarmið að 5.5 metra há bygging skerði útsýni enda sé hún fyrirhuguð í 1 – 1.5 metra lægra landi en þau hús sem næst standa. Þá er tilgreint í svörum skipulagsfulltrúa að heildarfjöldi bílastæða á lóðinni muni aukast úr 44 í 49 en bætt er við sjö bílastæðum vegna sambýlisins. Þá verði töluvert eftir af lóðinni til að njóta útiveru. Ekki liggur fyrir endanleg tillaga að byggingunni,“ segir í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Tengdar fréttir Nágrannar hóta málsókn vegna sambýlis í Laugarásnum Skipulagsráð samþykkti í gær stækkun á lóð Austurbrúnar 6 í Laugárásnum svo Félagsþjónusta Reykjavíkur geti byggt þar sambýli sem hýsa á fjölfatlað fólk með umönnunarþörf. Ekki var tekið tillit til harðra mótmæla nærri fimmtíu nágranna. 25. september 2014 07:00 Sorglegt segir borgarstjóri um viðhorf nágranna til sambýlis í Austurbrún Borgarstjórinn í Reykjavík segir sorglegt ef íbúar í Vesturbrún og Austurbrún telji að verðmæti húsa þeirra lækki ef byggt verður hús fyrir fjölfatlaða á svæðinu. Einn íbúinn, Jóhann G. Jóhannsson, segir hins vegar að það sé bygging á þessum stað og skerðin á grænum svæðum sem mótmælt sé enn ekki starfsemin í húsinu. 26. september 2014 07:00 Opið bréf til borgarstjóra Reykjavíkur Á lægvísan og óheiðarlegan hátt fullyrðir þú að við sem mótmælt höfum fyrirhugaðri byggingu á lóð Austurbrúnar 6, séum á móti fötluðu fólki. 30. september 2014 07:00 Sambýlið við Austurbrún: Segir vilja íbúanna skipta borgarstjóra litlu Íbúi við Austurbrún segir það ekki rétt að þeir sem mótmæli byggingu sambýlis séu á móti fötluðu fólki. 30. september 2014 08:30 Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira
Nágrannar hóta málsókn vegna sambýlis í Laugarásnum Skipulagsráð samþykkti í gær stækkun á lóð Austurbrúnar 6 í Laugárásnum svo Félagsþjónusta Reykjavíkur geti byggt þar sambýli sem hýsa á fjölfatlað fólk með umönnunarþörf. Ekki var tekið tillit til harðra mótmæla nærri fimmtíu nágranna. 25. september 2014 07:00
Sorglegt segir borgarstjóri um viðhorf nágranna til sambýlis í Austurbrún Borgarstjórinn í Reykjavík segir sorglegt ef íbúar í Vesturbrún og Austurbrún telji að verðmæti húsa þeirra lækki ef byggt verður hús fyrir fjölfatlaða á svæðinu. Einn íbúinn, Jóhann G. Jóhannsson, segir hins vegar að það sé bygging á þessum stað og skerðin á grænum svæðum sem mótmælt sé enn ekki starfsemin í húsinu. 26. september 2014 07:00
Opið bréf til borgarstjóra Reykjavíkur Á lægvísan og óheiðarlegan hátt fullyrðir þú að við sem mótmælt höfum fyrirhugaðri byggingu á lóð Austurbrúnar 6, séum á móti fötluðu fólki. 30. september 2014 07:00
Sambýlið við Austurbrún: Segir vilja íbúanna skipta borgarstjóra litlu Íbúi við Austurbrún segir það ekki rétt að þeir sem mótmæli byggingu sambýlis séu á móti fötluðu fólki. 30. september 2014 08:30
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent