Leiguverð hækkað um 37,7 prósent Samúel Karl Ólason skrifar 10. september 2014 14:55 Vísir/Vilhelm
Gríðarlega mikill munur er á milli hæsta og lægsta fermetraverðs sambærilegra leiguíbúðasamkvæmt könnun Neytendasamtakanna. Einnig er mikill munur á niðurstöðum samtakanna og meðalfermetraverðs samkvæmt þinglýstum samningum. Þá lækkar verð á fermetra eftir því sem íbúðirnar stækka. Samtökin könnuðu verð og framboð á íbúðum sem auglýstar voru til leigu þann 2. september. Eingöngu voru íbúðir á höfuðborgarsvæðinu skoðaðar, alls 192 talsins. Síðast gerðu samtökin sambærilega könnun í febrúar 2011. Miðað við þessar niðurstöður segir á vef samtakanna að gera megi ráð fyrir því að fermetraverð segi ekki alla söguna. Það fari eftir ýmsum þáttum eins og staðsetningu og ástandi íbúðar.Mynd/NeytendasamtökinÁ töflunni sést að mikill munur er á milli hæsta og lægsta leiguverðs. Hæsta verð herbergisleigu var 80 þúsund krónur og það lægsta 25 þúsund krónur. Hæsta verð stúdíóíbúðar var 160 þúsund krónur og það lægsta var 75 þúsund krónur. Með tilliti til sex herbergja íbúða var hæsta verð 350 þúsund krónur og það lægsta var 230 þúsund.Mynd/NeytendasamtökinMikill munur á fermetraverði Miklu munar á milli meðalfermetraverðs, sem unnið er af Þjóðskrá úr þinglýstum samningum og á niðurstöðum Neytendasamtkanna. Mikill munur er á fjölda íbúða í úrtaki samtakanna og Þjóðskrár. Sem dæmi má nefna að samkvæmt þjóðskrá er meðalfermetraverð stúdíóíbúðar í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar og á Seltjarnarnesi 2791 króna, samkvæmt Þjóðskrá. Samkvæmt markaðskönnun Neytendasamtakanna er meðalverðið 3862 krónur. „Hins vegar er munurinn það mikill að óhjákvæmilegt er að velta því fyrir sér hvort þinglýstir leigusamningar segi í raun alla söguna um verð á leiguhúsnæði, þó vissulega séu þeir eina tiltæka viðmiðið þegar kemur að því að greina leiguverð.“ Hækkað um 37,7 prósent Þá segir í niðurstöðum Neytendasamtakanna að vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hafi verið 137,7 stig í júlí samkvæmt Þjóðskrá og hafði það þá hækkað um 9,3 prósent á tólf mánuðum. Á sama tíma hafi launavísitalan hækkað um 5,9 prósent og vísitala neysluverðs um 2,4 prósent. „Samkvæmt þessu hefur leiguverð því hækkað um 37,7 prósent frá því í janúar 2011. Fram kemur í Hagtíðindum 2014:$ að 28,9 prósent þeirra heimila sem eru í lægsta tekjubilinu leigðu íbúðarhúsnæði árið 2013 og verður að segja að þann hóp munar um minna!“ Nánari upplýsingar um framkvæmd könnunarinnar og niðurstöður er hægt á sjá hér á vef Neytendasamtkanna.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira