20 milljarða velta: Getur skipt sköpum fyrir þjóðarbúið Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 17. september 2014 14:32 Árni Páll Árnason og Frosti Sigurjónsson. vísir/ernir/pjetur
Stangveiði í ám og vötnum á Íslandi veltir tæplega 20 milljörðum á ári. Stangveiðileyfi eru undanþegin virðisaukaskatti samkvæmt túlkun ríkisskattstjóra með vísan til laga um fasteignaleigu. Veltan er því mikil og gæti skilað umtalsverðu í þjóðarbúið. Fer hún vaxandi með fjölgun ferðamanna á ári hverju. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu það harðlega í gær að engar skýringar hefðu komið fram á því hvers vegna ekki hafi verið gengið lengra við fækkun undanþáguheimilda í virðisaukaskatti í fjárlögum næsta árs. Hægt að hlúa betur að því sem mikilvægt er að viðhalda Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, segir ástæðu til að skoða málið betur. Með því að fækka undanþáguheimildum sé hægt að lækka skuldir ríkissjóðs, bæta heilbrigðis- og menntakerfið og öðru sem mikilvægt sé að viðhalda. Enn sé verið að skoða breikkun virðisaukaskattstofnsins. „Það hefur oft komið til tals að þetta þurfi að skoða. Ég hef á tilfinningunni að þetta sé eitt af því sem ráðuneytið mun skoða og geri fastlega ráð fyrir því. Það er af nógu að taka í stórum ríkisrekstri. Hægt að lækka skuldir ríkissjóðs, hlúa betur að þeim innviðum sem eru sameiginlegir eins og heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu og öðru sem mikilvægt er að viðhalda,“ segir Frosti. Þá segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, það geta skipt sköpum að fækka undanþáguheimildumí virðisaukaskatti. „Það blasir auðvitað við að það er eftir gríðarlega miklu að slægjast. Þess vegna er það eiginlega óskiljanlegt og það sýnir það að ríkisstjórninni gengur ekkert til að einfalda kerfið. Þegar menn sjá sjá að að menn reyna ekki einu sinni að fara þá leið að skapa einhverja nýja almenna reglu um að afþreyingarþjónusta við ferðamenn skuli almennt vera í einhverju virðisaukaskattsþrepi,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, í samtali við Vísi. „Tölurnar sýna hvað þetta getur verið mikilvægt enda getur þetta skipt sköpum um fjölda marga þætti í heilbrigðiskerfinu og geta skipt miklu máli til að að tryggja þjónustu atvinnulausra og svo framvegis og framvegis. Við þurfum að fara yfir þetta í nefndinni og bind vonir við það að það sé hægt að fá nefndina til að hreyfa sig eitthvað í þessu máli,“ bætir Árni við.Uppfært: Ekki var farið með rétt mál í upphafi fréttar þegar talað var um hversu miklu veiðileyfi myndu skila þjóðarbúinu. Nákvæmar tölur liggja ekki fyrir og hefur fréttin því verið leiðrétt. Innlegg frá Karl Garðarsson.
Tengdar fréttir 20 milljarðar og enginn virðisaukaskattur Stangveiðin veltir 20 milljörðum á ári en er undanþegin virðisaukaskatti. 21. maí 2014 14:40 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira
20 milljarðar og enginn virðisaukaskattur Stangveiðin veltir 20 milljörðum á ári en er undanþegin virðisaukaskatti. 21. maí 2014 14:40