20 milljarðar og enginn virðisaukaskattur Jakob Bjarnar skrifar 21. maí 2014 14:40 Sala stangveiðileyfa er undanþegin virðisaukaskatti á forsendum laga um fasteignaleigu.
Stangveiði í ám og vötnum á Íslandi veltir tæplega 20 milljörðum á ári segir Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar. Mbl greinir frá þessu og er þar talað um að þessi atvinnugrein sé mikilvæg og skapi umtalsverðar tekjur. Jafnframt segir að mikill fjöldi erlendra gesta komi hingað til að veiða. Stangveiði er hins vegar undanþegin virðisaukaskatti samkvæmt túlkun ríkisskattstjóra með vísan til laga um fasteignaleigu. Bjarni Lárusson hjá Ríkisskattstjóra segir að þessa sé ekki beinlínis getið í lögum. „Ákvæðið hefur verið látið taka til leigu á fasteignatengdum réttindum, þar með talið er útleiga á veiðiréttindum,“ segir Bjarni en þessi túlkun var lög til grundvallar fremur snemma. (Bjarni vísar til laga um fasteignaleigu, 8. töluliður, 3. mgr, 2. gr. – lög númer 50 frá 1988 um virðisaukaskatt.) Bjarni útskýrir að þessi sá ástæðan fyrir undanþágunni, en það sem þessi undanþága þýði er að þeir sem selja veiðileyfi þurfi ekki að innheimta virðisaukaskatt en á móti geta þeir ekki dregið frá virðisaukaskatt vegna kaupa á aðföngum í bókhaldi, „þeir hafa ekki þessar innskattsheimildir,“ segir Bjarni. Þessi undanþága nær aðeins til útleigu á veiðiréttindum en svo gilda almennar reglur um tengda sölu á mat, gistingu og þjónustu. En, eins og stangveiðimenn þekkja er oft áskilið, þegar veiðileyfi eru seld, að slíkt sé keypt jafnframt.
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira