Misræmi í skýrslum lögreglu og ríkissaksóknara Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. september 2014 21:45 Frá aðgerðum í Hraunbæ í desember sl. Vísir/Pjetur
Í frumskýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna aðgerða í Hraunbæ, sem leiddu til þess að lögregla skaut Sævar Rafn Jónasson til bana, kemur fram að lögreglumenn hafi vitað hver var í íbúðinni áður en þeir fóru þar inn. Þetta er ekki í samræmi við það sem kemur fram í skýrslu ríkissaksóknara sem rannsakaði aðgerðir lögreglu á staðnum. Þar segir að lögreglumenn hafi ekki vitað við hvern þeir voru að fást við. Um málið var fjallað í Kastljósi í kvöld. Sævar Rafn Jónasson var skotinn til bana í desember sl. af sérsveit lögreglunnar. Afskipti lögreglunnar hófust þegar kvörtun barst frá nágranna Sævars vegna tónlistar sem var hátt spiluð í íbúð Sævars á 2. hæð í Hraunbæ 20. Þar að auki hafði hár hvellur heyrst úr íbúðinni. Lögreglumenn vissu ekki í upphafi að þeir væru að fást við Sævar Rafn. Vegna misskilnings töldu þeir að um annan mann væri að ræða og var honum flett upp í málaskrá en ekki Sævari. Fram kemur í skýrslum lögreglumanna af vettvangi, sem Kastljós hefur undir höndum, að lásasmiður sem kallaður hafi verið til hafi vitað að Sævar byggi í íbúðinni þar sem hann hafi opnað fyrir honum áður. Ef Sævari hefði verið flett upp hefðu lögreglumenn getað séð að hann hafði margsinnis áður komið við sögu lögreglu. Lögreglan hafði meðal annars þurft að aðstoða lækna við að flytja hann upp á geðdeild. Það hefði því legið ljóst fyrir að lögreglan var að eiga við andlegan veikan einstakling. Ríkissaksóknari telur að aðgerðir lögreglu í Hraunbæ hefðu verið með öðrum hætti ef ljóst hefði verið í upphafi að Sævar byggi í íbúðinni. Engu að síður komst saksóknari að þeirri niðurstöðu við rannsókn sína að lögreglan hefði ekki gerst sek um refsiverða háttsemi eða gáleysi í þeim aðgerðum sínum sem leiddu til þess að Sævar var skotinn til bana.
Tengdar fréttir "Hann hótaði að gera þetta fyrir nokkrum mánuðum" Systur Sævars Rafns Jónassonar, sem lést eftir að hafa skipst á skotum við lögreglu í gær, segja hann hafa hótað aðgerðunum nokkrum mánuðum áður en hann lét til skarar skríða. 3. desember 2013 19:32 Vonar að bið eftir krufningum styttist Ríkissaksóknari hefur enn ekki fengið krufningarskýrslu frá réttarmeinafræðingi vegna rannsóknar embættisins á atviki í Hraunbæ í desember þar sem lögreglumenn skutu mann til bana. 28. apríl 2014 09:23 Verðmunur á milli hverfa aldrei meiri 70% munur er á hæsta og lægsta fermetraverði í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu. Fermetraverð í miðborginni er að meðaltali 335 þúsund krónur en 192 þúsund krónur á Vöngum í Hafnarfirði. 6. mars 2014 20:00 Segir aðgerð lögreglu í Hraunbæ ekki refsiverða Í skýrslu lásasmiðs segir að lögreglan hafi ekki nefnt við hann að Sævar væri hugsanlega vopnaður byssu. 14. júní 2014 11:00 Tifandi tímasprengjur um land allt segir systir byssumanns í Hraunbæ "Þetta er bein afleiðing af lélegu heilbrigðiskerfi fyrir geðfatlaða,“ segir Sigríður Ósk Jónasdóttir, systir mannsins sem lést í skotbardaga í Árbæ í gær. 3. desember 2013 06:45 Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira
"Hann hótaði að gera þetta fyrir nokkrum mánuðum" Systur Sævars Rafns Jónassonar, sem lést eftir að hafa skipst á skotum við lögreglu í gær, segja hann hafa hótað aðgerðunum nokkrum mánuðum áður en hann lét til skarar skríða. 3. desember 2013 19:32
Vonar að bið eftir krufningum styttist Ríkissaksóknari hefur enn ekki fengið krufningarskýrslu frá réttarmeinafræðingi vegna rannsóknar embættisins á atviki í Hraunbæ í desember þar sem lögreglumenn skutu mann til bana. 28. apríl 2014 09:23
Verðmunur á milli hverfa aldrei meiri 70% munur er á hæsta og lægsta fermetraverði í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu. Fermetraverð í miðborginni er að meðaltali 335 þúsund krónur en 192 þúsund krónur á Vöngum í Hafnarfirði. 6. mars 2014 20:00
Segir aðgerð lögreglu í Hraunbæ ekki refsiverða Í skýrslu lásasmiðs segir að lögreglan hafi ekki nefnt við hann að Sævar væri hugsanlega vopnaður byssu. 14. júní 2014 11:00
Tifandi tímasprengjur um land allt segir systir byssumanns í Hraunbæ "Þetta er bein afleiðing af lélegu heilbrigðiskerfi fyrir geðfatlaða,“ segir Sigríður Ósk Jónasdóttir, systir mannsins sem lést í skotbardaga í Árbæ í gær. 3. desember 2013 06:45