Laus úr gæsluvarðhaldi Stefán Árni Pálsson skrifar 1. september 2014 09:35 Frá Vogum á Vatnsleysuströnd. visir/gva
Maður sem grunaður er um aðild að grófri líkamsárás og frelsissviptingu þann 6. ágúst síðastliðinn í Vogum á Vatnsleysuströnd hefur verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi en þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar. Héraðsdómur og Hæstiréttur hafa því hafnað kröfu lögreglustjóra um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum.„Að virtum gögnum málsins verður fallist á það með héraðsdómi að sóknaraðili hafi ekki leitt í ljós að fullnægt sé skilyrðum til að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008,“ segir í dómi Hæstaréttar. Fram kemur c. lið 95. grein laganna; „Ætla megi að hann muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið eða rökstuddur grunur leiki á að hann hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum hafa verið sett í skilorðsbundnum dómi“. Þrjú voru upphaflega úrskurðuð í gæsluvarðhald vegna málsins til 27. ágúst en ákæruvaldið hafði farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir einum þeirra. Átján ára piltur mun hafa orðið fyrir grófri líkamsárás í heimahúsi í Vogum á Vatnsleysuströnd. Ákærðu eru sögð hafa haldið fórnarlambi sínu í sex til átta klukkustundir á meðan þau gengu harkalega í skrokk á honum. Brot þeirra eru talin varða fangelsisrefsingu allt að 16 ára fangelsi. Í greinargerð lögreglustjóra segir að pilturinn hafi komið á lögreglustöðina í Grafarholti og tilkynnt lögreglu að hann hafi orðið fyrir líkamsárás og verið í svo mikilli geðshræringu að hann hafi verið óskýrsluhæfur að mati lögreglu. Kvaðst hann hafa verið tekinn og farið með hann út á land þar sem hann hafi verið pyntaður og honum hótað. Þá hafi lögreglan flutt piltinn á slysadeild þar sem læknir hafi tekið á móti honum. Að sögn vakthafandi læknis hafði pilturinn þar sömu sögu að segja, hann kvað þá hafa kýlt hann, sparkað í hann, notað rafbyssu, bitið hann, hann neyddur til að drekka smjörsýru og látinn sleikja frunsu á öðrum manni. Pilturinn hafi verið með litla rauða bletti á líkamanum sem að sögn læknis geti komið saman við frásögn hans um að beitt hafi verið rafbyssu. Þá hafi hann verið með marblett við vinstra auga, roða yfir andliti, rauða dökka rák á hálsi og marga blóðbletti. Þá hafi hann einnig verið með margar rauðar rákir víða um bakið eftir högg eða núning.
Tengdar fréttir Fimmti maðurinn handtekinn vegna líkamsárásarinnar í Vogum Þá hefur maðurinn sem grunaður er um að hafa stungið annan mann á Frakkastíg verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. 18. ágúst 2014 16:04 Látinn sleikja frunsu og drekka smjörsýru Pilturinn sem var sviptur frelsi sínu í Vogum á Vatnsleysuströnd var í haldi ræningja sinna í næstum 8 klukkustundir. Meint brot þeirra eru talin varða fangelsisrefsingu í allt að 16 ár. 18. ágúst 2014 17:19 Fjórir í haldi vegna frelsissviptingar og grófs ofbeldis 18 ára maður var sviptur frelsinu á höfuðborgarsvæðinu og fluttur í heimahús í Vogunum þar sem hann var beittur grófu ofbeldi. 15. ágúst 2014 09:25 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira
Fimmti maðurinn handtekinn vegna líkamsárásarinnar í Vogum Þá hefur maðurinn sem grunaður er um að hafa stungið annan mann á Frakkastíg verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. 18. ágúst 2014 16:04
Látinn sleikja frunsu og drekka smjörsýru Pilturinn sem var sviptur frelsi sínu í Vogum á Vatnsleysuströnd var í haldi ræningja sinna í næstum 8 klukkustundir. Meint brot þeirra eru talin varða fangelsisrefsingu í allt að 16 ár. 18. ágúst 2014 17:19
Fjórir í haldi vegna frelsissviptingar og grófs ofbeldis 18 ára maður var sviptur frelsinu á höfuðborgarsvæðinu og fluttur í heimahús í Vogunum þar sem hann var beittur grófu ofbeldi. 15. ágúst 2014 09:25