Hafði afskipti af um þúsund ökutækjum á menningarnótt Atli Ísleifsson skrifar 24. ágúst 2014 12:14 Áætlað er að gestir í miðborginni hafi verið um 100 þúsund þegar mest var í gær. Vísir/Andri Marínó
Fjöldi mála komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á menningarnótt en lögregla áætlar að gestir í miðborginni hafi verið um 100 þúsund þegar mest var. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að lögregla hafi verið með mikinn viðbúnað og haft í nógu að snúast en útköllum hafi fjölgað þegar á leið nóttina. „Starfsmenn umferðardeildar höfðu t.d. í mörg horn að líta en tólf umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar. Að venju bar nokkuð á að ökutækjum væri illa og/eða ólöglega lagt í og við miðborgina, en höfð voru afskipti af um 1.000 ökutækjum vegna þessa. Að öllu samanlögðu verður þó ekki annað sagt en að umferðin hafi gengið bara bærilega á menningarnótt, ekki síst þegar kom að því að greiða fyrir umferð úr miðborginni að lokinni flugeldasýningu.“ Afskipti voru höfð af fólki vegna ölvunar og fíkniefnaneyslu, en hafi lögregla tekið áfengi af unglingum og hellt því niður. „Er leið á nóttina fóru að berast nokkrar kvartanir vegna hávaða í heimahúsum, en slíkt er viðbúið um helgar og var ekki meira en við mátti búast. Fangageymslur lögreglustöðvarinnar voru fullnýttar í nótt, en ástand þeirra sem þar gistu var heldur bágborið eins og gefur að skilja.“ Lögregla segir samstarfið við björgunarsveitarmenn hafa gengið mjög vel og færir hún hlutaðeigandi aðilum færðar kærar þakkir fyrir aðstoðina. „Á heildina litið lítur lögreglan svo á að menningarnótt hafi farið ágætlega fram. Líkt og áður notaði lögreglan fésbókarsíðu embættisins til að miðla ýmsum upplýsingum á menningarnótt, sérstaklega þó eru sneru að umferðarmálum, og var því vel tekið.“Ölvunar- og fíkniefnaakstur Fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu á menningarnótt, en einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi fyrir fíkniefnaakstur. „Sá var stöðvaður á Kjalarnesi, en um var að ræða tæplegan tvítugan pilt. Annar ungur piltur var tekinn í Garðabæ, en sá ók ölvaður á umferðarmannvirki. Karl á þrítugsaldri var líka tekinn fyrir ölvunarakstur í Hafnarfirði og loks var maður á fimmtugsaldri tekinn fyrir sömu sakir í Reykjavík, en viðkomandi var stöðvaður á Sæbraut skömmu áður en flugeldasýning menningarnætur hófst.“Líkamsárásir Í tilkynningu lögreglu segir að um tíu líkamsárásir hafi verið tilkynntar til lögreglu eftir menningarnótt. „Nær allar eru taldar minniháttar, en þær áttu sér stað í miðborginni í nótt. Oftar en ekki var um tilefnislausar líkamsárásir að ræða, en þær áttu sér stað bæði innan og utanhúss, m.a. á dansgólfi skemmtistaða. Í einhverjum tilvikum voru deilur manna til komnar vegna kvennamála. Um miðnætti var björgunarsveitarmaður, sem var að aðstoða lögreglumenn á vettvangi, skallaður í andlitið, en árásarmaðurinn var handtekinn og fluttur í handjárnum á lögreglustöð. Þar hélt hann áfram að láta ófriðlega og hótaði sömuleiðis að skalla lögreglumenn. Eitt rán var tilkynnt til lögreglu á menningarnótt, en sími og veski var tekið af manni í miðborginni síðla nætur.“Fíkniefnamál „Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á menningarnótt, en hún lagði hald á bæði kannabisefni og einnig lítilræði af amfetamíni og kókaíni. Í einu málanna fundust kannabisefni í bifreið og viðurkenndi farþegi í bílnum aðild sína að málinu. Lögreglan framkvæmdi eina húsleit á menningarnótt, en í íbúð fjölbýlishúss í borginni fundust fíkniefni og hnúajárn,“ að því er segir í fréttatilkynningunni.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira